- Advertisement -

Hellirinn hennar Grýlu

Sjálfstæðisflokkurinn er með óráði í dag en ég sakna hans eins og hann var. Ég er ekki að grínast.

Birgir Dýrfjörð.

Birgir Dýrfjörð skrifar:

Það er fullt af góðu og greindu og vel gerðu fólki í Sjálfstæðisflokknum.  Það fólk sýndi nýlega í skoðanakönnun að það ætlar ekki að kjósa flokkinn aftur. Það er auðskilið.

Það er líka fólk í þingflokki hans sem gengur á mænunni og iðkar bölhyggju. Það reynir að búa til ofsahræðslu (fælni) við ESB og jafnræði þegna þess. Sá hópur segir ESB vera helli Grýlu sem borðar óþekk börn. Það álítur skylda sína að forða Íslendingum frá að lenda í hennar klóm.

Þú gætir haft áhuga á þessum

Sjálfstæðisflokkurinn er með óráði í dag en ég sakna hans eins og hann var. Ég er ekki að grínast.

Ég er sannfærður um að það er best fyrir pólitískan stöðugleika í stjórnarfari, að hafa frjálslyndan hægri flokk sem valkost móti víðsýnum lýðræðissinnuðum félagshyggjuflokki.  

Við þannig aðstæður er líka eðlilegt og rétt lýðræði að til verði flokkar, sem berjast fyrir málefnum sérstakra skoðana og þjóðfélagshópa.

Það skiptir máli að Sjálfstæðisflokkurinn geti orðið stjórntækur eins og hann var áður.

Staðreyndin nú er að þingflokkur hans, að frátöldum örfáum manneskjum, er bara pólitíkst drasl, enginn safi bara hrat. Hann hefur ekki mannskap, burði eða vilja til að kynna eða framkvæma hugmyndafræði og markmið alvöru stjórmálahreyfingar. Þingmenn hans trúa að skítkast og skætingur, aulabrandarar og raup um eigin yfirburði  sé aðferðin til að ávinna flokknum virðingu.

Öllum til ama og sjálfum sér til skammar þuldu þeir skætinginn mörgþúsund sinnum hver yfir öðrum á Alþingi. Kannanir sýna að kjósendum hans fer ört fækkandi.

Skoðanakönnun

Viðbrögð þingflokksins við fylgishruni í nýlegri könnun minna á Jón Sterka í Skugga-Sveini. 

Jón sterki var mikill raupari, hann réðst á Skugga-Svein sem tók hann á hné sér og sleit niður um hann buxur og brækur og rassskelti og lét hann svo rúlla niður á gólf.

Jón sterki spratt upp hysjaði upp um sig brækur sínar og reigði sig hnakkakertur og sagði hátt og skýrt „sáuð þið hvernig ég tók hann drengir“?

Mér finnst sjálfsmynd og veruleikaskyn og atgervi þingflokks sjálfstæðismanna vera á sömu nótum og Jón sterki – það er ekki gott. 

Birgir Dýrfjörð

Eftirskrift:

Ég held að málþófið sé ekki helsta ástæðan fyrir fylgishruni í skoðanakönnun, ég held að helsta ástæðan sé, að við málþófið og skömmina sem því fylgdi þá rann upp fyrir einlægu flokksfólki, að flokkurinn sem það hefur hingað til kallað flokkinn sinn er ekki flokkur þeirra sem í hann eru skráðir. Hann er flokkur auðugra útgerðarfélaga sem halda og fóðra og nýta Sjálfstæðisflokkinn og stuðningsfólk hans eins og búpening í sinni eigu.    


Tengdar fréttir sem þú gætir haft áhuga á að lesa: