- Advertisement -

„Hjálpum þeim mest sem hafa það best“

„Hvergi á jörðinni fær efnamesta fólk samfélagsins jafn ofsalegar niðurgreiðslur af hálfu ríkisvaldsins og hér á landi. Og það stórfurðulega í þessu öllu saman er að það er meirihluti fyrir því á Alþingi að halda þessu óbreyttu um ókomin ár,“ segir Sigmundur Ernir í leiðara Fréttablaðsins í dag.

„Og því eru skilaboð valdstjórnarinnar skýr. Hjálpum þeim mest sem hafa það best. Það er íslenska leiðin.“

Síðar skrifar hann: „Í sveitum þess er nýliðun að verða svo til ómöguleg í landbúnaði. Það stafar ekki síst af því að sterkefnaðasta fólkið í landinu, svo og auðjöfrar frá útlöndum eru farnir að kaupa upp tíðfölustu jarðirnar í landinu – og á stundum heilu dalina, ekki síst ef um þá renna eftirsóttar laxveiðiár sem er um að gera að koma í einkaeign.“

„Og auðvitað er það í ætt við annað hér á landi að stórkaupendum jarða á Íslandi er gerður eftirleikurinn til muna auðveldari en lítilmagnans sem ætlar sér að halda landinu í byggð og yrkja þar jörðina fyrir sig og sína.

Þú gætir haft áhuga á þessum

Það er engin búsetuskylda á jörðum hér á landi, eins og til dæmis í Danmörku og víðar í Evrópu þar sem stjórnvöld vilja koma í veg fyrir að sveitirnar verði að eignasafni auðmanna sem dvelja þar kannski eina og eina helgi yfir árið.

Þess vegna eru sveitirnar að tapast, rétt eins og sjórinn. Og fyrir því er líklega einnig ríkur meirihluti á Alþingi,“ þannig endar leiðari Sigmundar Ernis.


Tengdar fréttir sem þú gætir haft áhuga á að lesa: