- Advertisement -

Hlustið á raddir verka- og láglaunafólks

Trúnaðarráð Eflingar krefst þess að félagið fái beina aðkomu að þeim viðræðum og ákvarðanatöku sem fram undan er til að bregðast við þessu ástandi.

„Trúnaðarráð Eflingar fylgist náið með viðbrögðum stjórnvalda við efnahagsástandinu. Fundur trúnaðarráðs stóð yfir þegar tilkynnt var um fjölmiðlafund ríkisstjórnarinnar á morgun föstudag.

Á fundinum samþykkti Trúnaðarráð að hefja undirbúning að stofnun samninganefndar, sem fari með samningsumboð félagsins ef til nýrra kjaraviðræðna kemur með haustinu í kjölfar hugsanlegrar uppsagnar kjarasamninga.

Af þessu tilefni vill Trúnaðarráð minna á eftirfarandi:

Formennirnir þrír; Þorgerður Katrín, Kristrún Frostadóttir og Inga Sæland.

„Eflingarfélagar ásamt Breiðfylkingunni sýndu mikið hugrekki í kjaraviðræðunum veturinn 2023-2024 og studdu ábyrga kjarasamningagerð þar sem varnir gegn verðbólgu voru ein meginstoðin.

Í dag er komin upp sú staða að Eflingarfélagar, verka- og láglaunafólk Höfuðborgarsvæðisins, bera þyngstar byrðar af efnahagsástandi sem komið er úr böndunum. Breiðu bökin þola hávaxtastig og verðbólgu, en það gera tekjulág heimili ekki.

Trúnaðarráð Eflingar krefst þess að félagið fái beina aðkomu að þeim viðræðum og ákvarðanatöku sem fram undan er til að bregðast við þessu ástandi.

Trúnaðarráð bendir á að á nýafstöðnu Eflingarþingi voru samþykktar fjórar ályktanir með útfærðum tillögum um úrbótamál. Engin þeirra kostar ríkissjóð krónu. Má þar nefna leigubremsu, viðurlög við launaþjófnaði og kröfu um málefnalegar ástæður fyrir uppsögnum verkafólks á almennum vinnumarkaði.

Trúnaðarráð skorar á stjórnvöld að hlusta á raddir verka- og láglaunafólks, koma til móts við málefnalegar kröfur með afgerandi hætti og forða því að með haustinu skapist átök á vinnumarkaði sem koma hefði mátt í veg fyrir.“


Auglýsing

Tengdar fréttir sem þú gætir haft áhuga á að lesa: