
Sefán Ólafsson skrifaði:
Sjávarútvegur hefur malað gull, enda með mun betri afkomu en fyrirtæki í öðrum greinum atvinnulífsins. Það er meðal annars vegna hagstæðra skilyrða, sem felast í ódýru aðgengi að sjávarauðlind þjóðarinnar.
Eins og sjá má af myndinni sem hér fylgir mun fyrirhuguð hækkun veiðigjalda um ca. 10 milljarða litlu breyta um sterka stöðu sjávarútvegs, umfram önnur fyrirtæki í landinu.
Ef reiknireglu núverandi stjórnvalda hefði verið beitt á tímabilinu 2014 til 2023 þá hefði hagnaður sjávarútvegs verið að jafnaði 20% af veltu í stað 24%. Það er ekki mikil lækkun hagnaðar.
Meðalhagnaður fyrirtækja í viðskiptahagkerfinu í heild var hins vegar um 9%. Yfirburðastaða sjávarútvegs verður því áfram við lýði. Útvegsmenn munu áfram geta fjárfest bæði í sjávarútvegi og í öðrum greinum atvinnulífsins, vegna þess mikla umframhagnaðar sem greinin býr við.
Útvegsmenn munu því geta haldið áfram að eignast allt sem verðmætt er á Íslandi. Kanski er boðuð hækkun full lítil, ef eitthvað er!
Greinina birti Stefán á Facebooksíðu sinni.