- Advertisement -

Hvalfirðingar vilja ekki sameiningu

Vilhjálmur Birgisson skrifaði:

Ég styð því af fullri sannfæringu þá nálgun bæjarráðs Akraness að nú verði farið í að taka saman alla samninga, þar sem greiðslur, kostnaðarskipting og raunverulegur rekstrarkostnaður verði borinn saman og endurskoðaður.

Sveitarstjórn Hvalfjarðarsveitar hafnaði á fundi sínum 26. nóvember beiðni Akraneskaupstaðar um að fá óháðan aðila til að gera faglega úttekt á kostum og göllum sameiningar sveitarfélaganna. Þetta var ekki tillaga um sameiningu heldur upphafspunktur upplýstrar umræðu byggðrar á staðreyndum í stað tilfinninga. Það hefði verið skynsamlegt, gagnsætt og til hagsbóta fyrir íbúa beggja sveitarfélaga að fá slíka greiningu svo hægt væri að meta raunverulegan ávinning eða ókosti sameiningar. Ég tek skýrt undir með bæjarráði Akraness, deili sjónarmiðum þess og harmi að þessari beiðni hafi verið hafnað.

Á sama tíma og upplýsingaleit er hafnað er á heimasíðu Hvalfjarðarsveitar tekið skýrt fram að íbúar sveitarfélagsins hafi fullan aðgang að íþróttastarfi á Akranesi. Á meðfylgjandi mynd sést skýrt að bent er á að íbúar geti stundað æfingar og keppnir hjá öllum aðildarfélögum ÍA. Þetta er umfangsmikið íþrótta- og afreksstarf sem byggir á aðgengi að mannvirkjum sem kosta skattgreiðendur á Akranesi upp undir einn milljarð króna á ári í rekstri. Samt greiðir Hvalfjarðarsveit ekki eina einustu krónu til Akraneskaupstaðar fyrir rekstur íþróttamannvirkja og greiðir aðeins sex milljónir til ÍA. Miðað við íbúahlutfall, 10%, ætti greiðsla að vera um 100 milljónir. Munurinn er verulegur, kerfislægur og fellur beint á herðar Akranesinga.

Þú gætir haft áhuga á þessum

Allt eru þetta innviðir sem Akranes byggir upp…

Þetta snýst þó ekki eingöngu um íþróttir. Á sama vef Hvalfjarðarsveitar er vísað á fleiri þjónustur á Akranesi sem Hvalfjarðarsveit greiðir ekki fyrir. Þar má nefna félagsstarf eldri borgara í Feban, þjónustu Fjöliðjunnar, Búkollu, ruslahaugum og fleira. Allt eru þetta innviðir sem Akranes byggir upp, rekur og niðurgreiðir með skattfé íbúanna en Hvalfjarðarsveit greiðir ekki fyrir þátttöku sinna íbúa.

Ég styð því af fullri sannfæringu þá nálgun bæjarráðs Akraness að nú verði farið í að taka saman alla samninga, þar sem greiðslur, kostnaðarskipting og raunverulegur rekstrarkostnaður verði borinn saman og endurskoðaður. Það er rétta leiðin, ábyrg og réttlát gagnvart íbúum Akraness. Ef sveitarfélag vill hafna jafnvel því að kanna mögulega sameiningu með gagnsæi og fagmennsku þá verður að minnsta kosti að tryggja að það greiði sanngjarnt endurgjald fyrir þá þjónustu sem það nýtir. Það er ekki á ábyrgð Akranesinga að niðurgreiða rekstur fyrir annað sveitarfélag, allra síst fyrir sveitarfélag sem vill ekkert með Akranes hafa.

Ég fagna því að bæjarráð Akraness ætli nú að taka loksins á þessu máli af festu og með hagsmuni skattgreiðenda á Akranesi að leiðarljósi. Það er rétt, það er sanngjarnt og það er löngu tímabært.

En sú ákvörðun kallar jafnframt skýrt á eitt: að Hvalfjarðarsveit greiði allan raunkostnað af þeirri þjónustu sem hún nýtir á Akranesi. Það er einfalt jafnræðismál, felur í sér ábyrgð gagnvart báðum sveitarfélögum og er lágmarksforsenda sanngjarns samstarfs fram á við.

Að sjálfsögðu virðum við þá ákvörðun sveitarstjórnar Hvalfjarðarsveitar að hafna því að láta kanna kosti og galla sameiningar, þó við séum henni ósammála. En sú ákvörðun kallar jafnframt skýrt á eitt: að Hvalfjarðarsveit greiði allan raunkostnað af þeirri þjónustu sem hún nýtir á Akranesi. Það er einfalt jafnræðismál, felur í sér ábyrgð gagnvart báðum sveitarfélögum og er lágmarksforsenda sanngjarns samstarfs fram á við.


Auglýsing

Tengdar fréttir sem þú gætir haft áhuga á að lesa: