Drullupolllurinn í Hádegismóum

Davíð og hans nánasta hirð virðist hafa stappað vel í eigin drullupolli. Sómakæru fólki er brugðið. Og er það virkilega svo að lögræðingur gamli, Davíð Oddsson, hleypi skrifum sem þessum í sinn furðulega fjölmiðil.
Mogginn veikist og fylgi flokksins minnkar ört. Er þá eina viðbragðið að stappa í drullupolli? Að skíta sjálfa sig út, draga enn úr þverrandi fylgi og trúverðugleika?
Haukur Arnþórsson stjórnsýslufræðingur skrifar: „Þetta virðist vera fjölskylduharmleikur. Sem Morgunblaðið tekur upp og birtir einhliða sjónarmið annars aðilans. Mér virðist því ekki um neitt að ræða sem er stjórnsýsluega áhugavert, þetta eru væntanlega prívatmál. Þangað til annað kemur í ljós tel ég að um vindhögg Mbl. gagnvart Sigríði ríkissaksóknara sé að ræða. Ályktunin um að hegðun Helga Magnúsar á félagsmiðlum (á opinberum vettvangi) og fjölskyldudrama ónefnds saksóknara sé sambærileg má vísa til föðurhúsanna. Og að hamra á kæru eiginmanns með fráleitum ásökunum og „játningu“ sem dregin var til baka er nokkuð ómerkilegt.“ Fleiri taka undir með Hauki.