Fréttastofa RÚV birti í morgun þessa merku frétt:
Ríkisendurskoðandi áritar ársreikninga ríkisfyrirtækja án þess að vera löggiltur endurskoðandi. Heimild hans til þess er umdeild. Hann telur heimild sína óvéfengjanlega en endurskoðendaráð, sem sinnir gæðaeftirliti með störfum endurskoðenda, hefur vísað málinu til lögreglu og Félag löggiltra endurskoðenda hefur vísað málinu til atvinnuvegaráðuneytisins og til ESA, eftirlitsstofnunar EFTA-dómstólsins.
Ákvæði um að ríkisendurskoðandi skyldi vera löggiltur endurskoðandi var fellt úr lögum um ríkisendurskoðanda með breytingu á lögunum 2016. Í greinargerð með frumvarpinu segir um 21. grein, sem fjallar um gildissvið laganna gagnvart lögum um endurskoðun, að ekki sé gert ráð fyrir því að ríkisendurskoðandi sinni sjálfur endurskoðun. Í greinargerðinni segir einnig að viðbúið væri að lítið myndi reyna á ákvæðið í framkvæmd.
Guðmundur Björgvin Helgason, sem kosinn var ríkisendurskoðandi til sex ára af Alþingi frá 2022, er annar ríkisendurskoðandi til að gegna embættinu án þess að hafa starfsleyfi sem endurskoðandi, en sá fyrsti sem áritar ársreikninga ríkisfyrirtækja án þess að löggiltur endurskoðandi sem starfar hjá embættinu áriti með honum.
