Stjórnsýsla: „Þetta er farsæl niðurstaða og rétt ákvörðun af hálfu Sigríðar Bjarkar. Það er mikilvægt að um lögregluna ríki friður og traust. Nú stöndum við frammi fyrir því verkefni að koma rekstri embættis ríkislögreglustjóra á réttan kjöl og halda áfram að efla lögregluna í landinu. Ég þakka Sigríði Björk fyrir störf sín innan lögreglunnar undanfarna áratugi,“ segir Þorbjörg Sigríður dómsmálaráðherra á vef stjórnarráðsins.
Í kjölfarið mun ráðherra flytja Sigríði Björk í stöðu sérfræðings í aðgerðum gegn kynbundnu ofbeldi í dómsmálaráðuneytinu.
„Ég hef lagt mikla áherslu á baráttu gegn kynbundnu ofbeldi og þessi málaflokkur er forgangsmál hjá mér og ríkisstjórninni. Sigríður Björk hefur áratuga reynslu og þekkingu á þessu sviði sem mun því nýtast áfram.“