Atvinnuvegaráðherra hefur ákveðið að auglýsa laust til umsóknar embætti forstjóra Hafrannsóknastofnunar. Auglýsing þess efnis mun birtast á næstum vikum.
Núverandi forstjóri hefur gegnt embættinu frá 1. apríl 2021 og rennur skipunartími hans út 31. mars nk.
Atvinnuvegaráðuneytið hefur á undanförnum misserum unnið að mati á stöðu og framtíð Hafrannsóknastofnunar og hafrannsókna á Íslandi. Frumniðurstöður þeirrar athugunar benda til þess að þörf sé á að ráðast í heildstæða stefnumótunarvinnu til að efla stofnunina til frambúðar, bæði með tilliti til lagaumgjarðar, rekstrar og forgangsröðunar verkefna.
Slíkum breytingum fylgja óhjákvæmilega margvíslegar breytingar á starfsemi og skipulagi stofnunarinnar. Í ljósi framangreinds er það mat ráðherra að rétt sé að auglýsa embættið laust til umsóknar.
Þetta er tekið beint af síðu atvinnuvegaráðuneytisins.