- Advertisement -

Kostnaður sjúklinga eykst um allt að 600 prósent

Kostnaðarþátttaka sjúklinga hjá t.d. háls-, nef- og eyrnalæknum aukast um rúmlega 600%. Þetta segir Alþýðusamband Íslands.

Óttarr Proppé heilbrigðisráðherra stefnir á, að því er segir á vef ASÍ, að árlegt kostnaðarþak sjúklinga verði á bilinu 50 til 70 þúsund ári frá og með 1. maí 2017.

„ASÍ kallar eftir því að staðið verði við fyrirheit um 50.000 kr. þak eins og lagt var upp með. Heilbrigðisráðherra verður að gefa út afdráttarlausa yfirlýsingu um fjárhæð þaksins á almennu gjaldi verði ekki hærri en 50.000 kr. og endurskoða þakið og reiknireglur í þeim drögum að reglugerð sem nú liggja fyrir. Samkvæmt þeim á þakið að verða 69.700 fyrir almenna sjúklinga en 45.300 kr. fyrir lífeyrisþega og börn. Þetta er allt of hátt þak. 

ASÍ hefur tekið saman nokkur dæmi um breytingar á kostnaðarþátttöku ef heilbrigðisráðherra undirritar drög að reglugerð óbreytta með almennu þaki upp á 69.700 kr.
Dæmin sýna kostnað við að leita sér tilfallandi læknisþjónustu hjá sjálfstætt starfandi sérgreinalæknum ef sjúklingurinn hefur ekki náð greiðsluþátttökuþaki.

Eins og dæmin sýna mun kostnaðarþátttaka aukast um 10-40% fyrir einstaka heimsóknir almennra sjúklinga og 70-125% hjá lífeyrisþegum. Börn munu fá gjaldfrjálsa þjónustu hjá sérgreinalæknum að því gefnu að þau fái fyrst tilvísun frá heimilislækni. Að öðrum kosti mun kostnaðarþátttaka þeirra hjá t.d. háls-, nef- og eyrnalæknum aukast um rúmlega 600%.

Þú gætir haft áhuga á þessum

Þessi kostnaðaraukning er óásættanleg og mun að öllum líkindum valda því að enn fleiri fresti nauðsynlegri læknisþjónustu vegna kostnaðar en þetta hlutfall er nú þegar mun hærra en á hinum Norðurlöndunum.

ASÍ studdi áform um nýtt greiðsluþátttökukerfi og taldi 50.000 kr. þak á ári fyrir almenna sjúklinga og 33.300 fyrir lífeyrisþega og börn ásættanlegt fyrsta skerf. Ný ríkisstjórn verður að standa við þau fyrirheit. Stefna ASÍ er að heilbrigðisþjónusta verði gjaldfrjáls og yrði 50.000 kr. almennt þak fyrsta skrefið í þá átt.“

Sjá nánar hér. http://www.asi.is/um-asi/utgafa/frettasafn/almennar-frettir/asi-motmaelir-of-hau-kostnadarthaki-i-greidsluthatttoku-sjuklinga/


Tengdar fréttir sem þú gætir haft áhuga á að lesa: