Bolli Héðinsson hagfræðingur vekur athygli á grein sem hann skrifaði fyrir rúmlega fimm árum. Greini á jafnvel við í dag og hún átti við á árinu 2019:
„Ég hitti fyrir skemmstu kunningja minn, útgerðarmann, og spurði hann
hvernig útgerðin gengi. „Aldrei betur“ svaraði hann „ég sé ekki fram á að þurfa
að greiða eina einustu krónu í veiðigjöld.“ Ég hváði en hann skýrði þetta út
fyrir mér mér. „Þetta verður einfalt. Gamli Range Roverinn minn er orðinn
þriggja ára og auðvitað mun útgerðin sjá mér fyrir nýjum bíl. Þeir fást á 14
milljónir en það er ekki eðlilegt að útgerðarmaður þurfi að sætta sig við
ódýrustu gerð. Svo er alltaf eitthvað sem ég get tínt til í kostnað,
utanlandsferðir og viðhald á húsinu og sumarhúsinu svo þegar upp er staðið þá
verður ekkert eftir til að borga í veiðigjöld.
Vinstri grænir voru svo assgoti herskáir fyrir
síðustu kosningar og við vorum aðeins smeykir, en það var ekkert að marka, þú
manst strax í vor vildu þeir allt fyrir okkur gera. En þá kom eitthvað
hagfræðingastóð úr háskólanum sem skaut þeim skelk í bringu en það var síst
verra að bíða.
Ef þetta hefði orðið eitthvað vandamál með
veiðigjöldin þá eigum við alltaf tromp uppi í erminni og „látum út
landsbyggðarspilið“ eins og við útgerðarmenn köllum það. Þá finnum við einhvern
útgerðarmann sem er með allt niður um sig og segjum „hvað, ætlið þið að leggja
af plássið?“ Og það er segin saga enginn framsóknarflokkanna stenst svoleiðis
og skiptir þá engu öll hin plássin sem við höfum lagt í eyði þegar við höfum
selt hver öðrum kvótann, það skiptir framsóknarflokkana engu.“
„En hvað segja endurskoðendurnir, ert þú ekki með
eitt af þessum fyrirtækjum með fínu útlendu nöfnin sem endurskoðar fyrir þig?“
spurði ég. „Jú blessaður, þeir segja ekki múkk og telja þetta alltsaman
útgerðarkostnað. Þú manst hvað þeir voru þægir við bankana fyrir hrun. Þeir
sögðu að allt væri í himnalagi í bönkunum alveg fram á síðasta dag. Þeir eru
ekkert að spá í þetta og gera bara eins og ég segi.“