Atli Þór Fanndal skrifaði:
Síðast þegar veiðigjöld voru ‘leiðrétt’ og kvótahafar keyptu leikara í að gráta yfir því að landsbyggðin yrði lögð niður hét grátkorinn þeirra Landsamband íslenskra útvegsmanna, LÍÚ. Þeir gengu svo fram af almenningi þá að LÍUa LÍÚari varð að samheiti yfir lygar og lygara. Stemmarinn á skrifstofunni var við frostmark og útvegsmenn mættu á sjálfsstyrktarnámskeið og grétu í fréttamönnum yfir því að þeir gætu varla fengið sér bjór í bænum lengur því öllum væri svo illa við þá. Úr varð SFS sem hefur í áratug grátið af hörku en undir mýkri grafík.
Núna endurtaka þeir leikinn, línurnar, handritin og vælið en það satt að segja nennir enginn að hlusta nema svona til að æla yfir því hvað þetta er firrt og leiðinlegt. SFS er sem sagt svona eins og örflokkur staðráðinn í að tapa kosningum með tilburðum undir dyggri stjórn sanntrúaðra. Skemmtilegt að horfa upp á. Vonandi er einhver á skrifstofunni byrjaður að leitað að vinnustaðasálfræðingi, auglýsingastofu og hressum markþjálfum fyrir ofsótta kvótahafa í sálarkrísu.