- Advertisement -

Mogginn hefur ótrú á stjórnvöldum

Mogginn hefur ótrú á stjórnvöldum. Og er svo sem ekki einn um það. Í leiðara dagsins segir: „Það er gott að stjórn­völd átta sig á að gera þurfi bet­ur í þess­um efn­um, en það er fátt sem bend­ir til að þau átti sig á hve al­var­leg­ur vand­inn er.“

Þar er átt við að að hér og þar eru fyrirtæki sem bíða og bíða eftir að hinar og þessar stofnanir gefi grænt ljós á hinar ýmsu framkvæmdir. Þá er víða að finna biðlistana. Í þingræðu sagði heilbrigðisráðherra pólitíska sátt um „hæfilega“ langa biðlista í heilbrigðiskerfinu. Svo er greinilega ekki í tilfelli Moggans og atvinnulífsins.

Svo er greinilega ekki alls staðar.


Tengdar fréttir sem þú gætir haft áhuga á að lesa: