- Advertisement -

Munum öll fylgjast með slátruninni á Gaza

Samkvæmt opinberum tölum hafa 1200 Ísraelsmenn verið drepnir núna í aðgerðum Hamas. Á móti hafa 1500 Palestínumenn verið drepnir af Ísraelshers.

Kristinn Hrafnsson.

Kristinn Hrafnsson skrifaði:

Hryllingurinn í útrás Hamas frá Gaza er ekki alveg talin duga til þjóðarmorðs á Palesínumönnum. Þess vegna þarf að auka við hryllingssöguna t.d. með óstaðfestum fregnum sem blaðamenn dreifa af áfergju. Sögurnar af því að Hamas hafi skorið höfuð af börnum hafa nú farið á flug og eru heimildarmennirnir úr ísraelska hernum. Blaðamenn hafa ekki séð nein slík ummerki, þó að þeir hafi fengið aðgang að vettvangi voðaverkanna og viðurkenna því (þeir heiðarlegustu) að þetta sé óstaðfest. Það skiptir engu máli – þessu er kastað í forsíðuuppslætti með stríðsfyrirsögnum.

Stjórnmálamenn Vesturlanda eta þetta upp og básúna, allt til Hvíta hússins. Biden Bandaríkjaforseti vísaði til hryllilegra sagna af slátrun barna sem minntu á óhæfuverk ISIS. Samanburður við ISIS var ekki nægur og þurfti að draga inn eitthvað ennþá verra. „Þetta er versti mannskaði Gyðinga á einum degi síðan í Helförinni“, sagði Bandaríkjaforseti og þetta bergmálaði siðan Netanyahu, forsætisráðherra Ísraels. Nei við getum ekki látið við sitja að draga samjöfnuð við Helförina og grimmdarverk ISIS. Einn úr æðstu stjórn Ísraelshers sagði að Ísraelar væru að upplifa atburði sem væru í senn þeirra 11. september og þeirra Pearl Harbour.

Þú gætir haft áhuga á þessum

Slátrun er í undirbúningi, bara spurning hvenær.

Samkvæmt opinberum tölum hafa 1200 Ísraelsmenn verið drepnir núna í aðgerðum Hamas. Á móti hafa 1500 Palestínumenn verið drepnir af Ísraelshers. Það mun ekki duga. Sé miðað við tölu látinna á liðnum árum verður að drepa a.m.k. 20 Palestínumenn fyrir hvern og einn Ísraela.

Hundruð þúsunda hermanna hafa raðað sér upp í kringum gaddavírsgirðinguna sem umlykur Gaza og bíða eftir grænu ljósi til að gera allsherjarárás á svæðið þar sem yfir 2,2 milljónir manna búa – helmingurinn börn. Slátrun er í undirbúningi, bara spurning hvenær, því fyrst á að svelta fólkið. Þar er nú vatnslaust og matur á þrotum.

Síðasta stórslátrun á fólki á Gaza var árið 2014. Það var viðbragð við sprengjuskeytaárás frá Gaza inn í Ísrael. Í þeim var 71 Ísraeli drepinn. Í loftárásunum í kjölfarið voru 2250 Palestínumenn drepnir. Samkvæmt mati Sameinuðu þjóðanna voru 2/3 óbreyttir borgarar.

Slátrunin árið 2014 fékk ekkert sérstakt minni né heiti í okkar huga. Þó að tala látinna væri eitthvað hærri en árin á undan og eftir, var þetta svo sem ekkert annað en tala. Munið að í hugum stjórnenda Vesturlanda skiptir líf Palestínumanns a.m.k. tuttugu sinnum minna máli en líf Ísraelsmanns.

Poppið og njótið þjóðarmorðsins.

Við getum því farið að undirbúa okkur undir hroðalega slátrun sem verður miklu mannskæðari en 2014. Ofaná sveltið verður áfram beitt loftárásum og hús jöfnuð við jörðu. Þetta verða það sem einn ritstjóri kallaði „hliðrænar aðferðir“ sem honum þótti greinilega hugnanlegri leið til manndrápa en víg með handvopnum, byssum eða hnífum. Það er ríkjandi viðhorf. Við höfum vanist því að það sé skárra að senda eina stóra sprengju úr öruggri fjarlægð á fjölskyldufagnað eða brúðkaup sem tætir í sundur líkama tuga eða hundruð manna, en að senda herlið á staðinn til að valda sama manntjóni „óhliðrænt“. Það er álitið dýrsleg grimmd og ólýsanlegur skepnuskapur sem við bregðumst við á innsoginu. Fjarsprengingar eru bara tæknileg jöfnunaraðgerð. Við erum hársbreidd frá því að kalla það friðarsprengingar. Þegar kemur að Palestínumönnum líkja Ísraelar fjöldaslátrunum við grisjun og tala um að „slá blettinn“.

Við munum öll fylgjast með slátruninni á Gaza og þegar rykið sest verður gerð hausatalning og skiptir þá litlu hver útkoman er, hún mun ekki kalla á nokkra samúð hjá þeim sem klifa á því að Ísraelar hafi rétt á að verja sig … og hefna fyirir ISIS, 11. september, Pearl Harbour og Helförina. Því verður fagnað með því að draga ísraelska fánann við hún á opinberum byggingum.

Poppið og njótið þjóðarmorðsins.


Tengdar fréttir sem þú gætir haft áhuga á að lesa: