„Helförin, þar sem fyrst og fremst Gyðingar, eða alls sex milljónir, voru drepnir, einungis stutt frávik í langri og farsælli sögu germönsku þjóðarinnar.“
Umræðan: Helgi Gunnlagusson afbrotafræðingur skrifaði fina grein á Vísi. Þar má til að mynda finna þetta:
„Hugmyndafræði AFD (Alternative Für Deutchland) gengur út á að efla þjóðerniskennd og endurvekja þýska reisn og glæsta sögu. Utanaðkomandi öfl hafi of lengi fengið að grafa undan þessari arfleifð, einkum útlendingar og aðrir minnihlutahópar. Skiptingin í við og þeir áberandi. Við verðum að verjast þessum utanaðkomandi öflum sem elítan hefur gefið frítt spil í þýsku samfélagi. Innflytjendur fengið að streyma stjórnlaust inn í landið með leyfi elítunnar og afbrot og upplausn vaxið í kjölfarið. Þessa flóðbylgju verði strax að stöðva og í framhaldi draga úr umfangi þeirra í samfélaginu. Þýskaland þarf að verða hreint land á ný.“
Aðeins síðar í greininni segir:
„Alls konar hópar fái of mikið rými í Þýskalandi hvort sem það eru innflytjendur, hinsegin fólk, trans, múslimar eða aðrir minnihlutahópar. Samkennd og samlíðan með öðrum en þeim sjálfum er bara fyrir góða fólkið og kemur lýðræði og mannréttindum ekkert við. Hefðbundnu gildin þarf að endurvekja, Þýskaland er ein þjóð, kynin aðeins tvö, femínismi er bein ógn við góð og gegn gildi.
Endurskrifa þarf söguna, helförin fær of mikið rými í sögukennslunni, er í raun bara eins og hvert annað fugladrit í sögu þjóðarinnar sem sé óvenju glæsileg og beri að hampa. Skylduheimsóknir skólabarna í útrýmingarbúðir nasista þarf því að afleggja, listaverk sem minna á helförina eru of mörg í Þýskalandi og stemma þarf stigu við fjölda þeirra. Helförin, þar sem fyrst og fremst Gyðingar, eða alls sex milljónir, voru drepnir, einungis stutt frávik í langri og farsælli sögu germönsku þjóðarinnar.“
Hér er svo slóð á alla grein Helga Gunnlaugssonar.