- Advertisement -

Þegar ofmetnaður og heimska ráða ferðinni fara hlutirnir venjulega illa

Hann getur ekki stýrt kosningum og meiriháttar klúður mun á endanum fella hann.

Jón Ólafsson.

Stjórnmál/Erlent: Jón Ólafsson prófessor skrifaði:

Trump hefði kannski átt að ráðgast við vinn sinn Pútín áður en forseti Venesúela var sóttur. Vinur hans hefði þá getað sagt honum af biturri reynslu að maður stjórnar ekki heiminum með „sérstökum hernaðaraðgerðum“ og jafnvel stór og sterk ríki hafa veikleika sem stundum eru augljósir hinum smærri og veikari. Dæmisagan um Davíð og Golíat er jafngömul hugmyndinni um að afl hins sterkari hafi alltaf ráðið öllu í veröldinni. Þegar ofmetnaður og heimska ráða ferðinni fara hlutirnir venjulega illa. Kostirnir sem Trump hefur ef Venesúela lætur ekki að stjórn eru ekki góðir.

Bandaríkin eru ekki Rússland og jafnvel þótt Trump takist að halda sér í sviðsljósinu með yfirlýsingum og hótunum eru takmörk fyrir því hvað hann getur leyft sér þann tíma sem hann er öruggur um stuðning þingsins. Hann getur ekki stýrt kosningum og meiriháttar klúður mun á endanum fella hann. Fátt sem hann hefur tekið sér fyrir hendur eykur líkur á sigri repúblikana í haust sem er forsendan fyrir því að hann geti haldið gandreið sinni áfram.

Þess vegna er alþjóðakerfið heldur ekki hrunið hvað sem öðru líður. Það veltur á Evrópuleiðtogum og þegar upp er staðið bandarískum kjósendum.

En það eru vissulega fréttir að áhrifamesti idjótinn í Hvíta húsinu sé þessi gæfusnauði drengur:


Tengdar fréttir sem þú gætir haft áhuga á að lesa: