- Advertisement -

Nýi Bjarni gagnrýnir gamla Bjarna

„Það er ekki Kveiksþátturinn sem er hneyksli, það er ábyrgðarflótti Sjálfstæðisflokksins sem er hneyksli.“

Sigmar Guðmundsson.
Sigmar Guðmundsson:
Bjarni, sem ber auðvitað mikla ábyrgð á vaxtabrjálæðinu sem núna er allt að drepa…

„Kveikur fjallaði um krónuna í gær. Fjallað var um þá staðreynd að sum fyrirtæki fá að losna undan kostnaðarsömum krónusveiflum á meðan heimilin þurfa ítrekað að þola rothögg vegna þessa sama óstöðugleika. Þátturinn dró fram mismunandi sjónarmið í samfélagi þar sem beinn kostnaður við krónuna er í kringum 300 milljarðar á ári. Þetta var stórfínn þáttur,“ sagði Sigmar Guðmundsson á Alþingi fyrr í dag.

Fyrrverandi fjármálaráðherra, Bjarni Benediktsson, brást við með fjölmiðlarýni. Þetta er áróður gegn krónunni og hneyksli, segir hann, án þess að nefna eina einustu staðreyndavillu. Bjarni, sem ber auðvitað mikla ábyrgð á vaxtabrjálæðinu sem núna er allt að drepa, segir að í þáttinn hafi vantað umræðu um gengisáhættu og er þar að vísa í myntkörfulánin fyrir hrun. En hvað sagði Bjarni Benediktsson um nákvæmlega þetta í lok árs 2008 þegar þjóðin sleikti sár sín, m.a. vegna þess að gjaldmiðillinn hrundi? Þar sagði hann, með leyfi forseta:

„En sé horft til lengri tíma er hætt við að krónan verði okkur fjötur um fót. Sá sveigjanleiki sem krónan veitir okkur til að kljást við afleiðingar mistaka í hagstjórn eða til að bregðast við ytri áföllum á sér því miður þá skuggahlið að vera sveifluvaldandi og geta ýtt undir óstöðugleika í hagkerfinu. Óstöðugur gjaldmiðill dregur úr trausti á hagkerfinu …“

Þegar nákvæmlega sömu sjónarmið og hans árið 2008 eru veðruð í gær af virtum hagfræðingur þá heitir það hneyksli og áróður gegn krónunni. Nýi Bjarni er sem sagt að gagnrýna gamla Bjarna fyrir áróður og er hneykslaður. Honum fannst eitt og annað vanta í umfjöllunina sem þjónar varðstöðunni með krónunni en hann gleymir sjálfur viljandi að nefna okurvextina og verðbólguna sem er alltaf miklu hærri á Íslandi en annars staðar. Hann gleymir líka að nefna hagstjórnarmistök Sjálfstæðisflokksins sem felast í útgjaldaaukningunni. Minnisleysið náði líka yfir langvarandi lágvaxtarskeiðið sem hann lofaði fyrir tveimur árum og stóð yfir í korter. Það er ekki Kveiksþátturinn sem er hneyksli, það er ábyrgðarflótti Sjálfstæðisflokksins sem er hneyksli. Það að saka fjölmiðil um áróður þegar fjölmiðillinn er að vinna vinnuna sína er hneyksli og hæstv. fyrrverandi fjármálaráðherra ætti að hafa það í huga.“


Tengdar fréttir sem þú gætir haft áhuga á að lesa: