- Advertisement -

„Ógn við lýðræðið að setja einkarekna miðla á ríkisspenann“

Umræðan: Karl Garðarsson, fyrrum fréttastjóri, skrifaði:

Karl Garðarsson.

„Ríkisstjórnin hefur ákveðið að gera nánast alla fjölmiðla landsins að ríkismiðlum. Þetta getur verið afskaplega heppilegt fyrir stjórnmálamenn þar sem lítil hætta er á að fjölmiðlar slái fast á höndina á þeim sem fæðir þá. Í þessu sambandi má líka minna á nýlegar hótanir þingmanna í garð fjölmiðla sem birtu fréttir sem voru þeim ekki þóknanlegar. Undirrritaður var formaður nefndar um auglýsingamál RÚV sem skilaði tillögum til menntamálaráðherra um þessi mál fyrir rúmum tveimur árum. Grundvallarstefið í tillögum okkar var að takmarka þyrfti ágang RÚV á auglýsingamarkaði til muna en að einkareknir fjölmiðlar gætu ekki og mættu ekki verða háðir ríkinu með framlög. Það er ógnun við lýðræðið að setja einkarekna miðla á ríkisspenann og mjög varhugaverð þróun.“


Auglýsing

Tengdar fréttir sem þú gætir haft áhuga á að lesa: