- Advertisement -

Óverðmerktir gosdrykkir í pósthúsum

Neytendur Neytendastofa kannaði verðmerkingar í pósthúsum á höfuðborgarsvæðinu. Farið var í tíu pósthús og athugað hvort verðlisti yfir helstu þjónustuliði væri til staðar og hvort söluvara væri verðmerkt. Verðlisti var á öllum stöðum en gerð var athugasemd við tvö pósthús, Póstinn Stórhöfða og Póstinn Dalvegi þar sem vantaði verðmerkingar á gos í kæli, sælgæti, bækur og fleira
„Ástæðan fyrir því að svo mikilvægt er að verð sé á vörunni sjálfri eða við hana er sú að einungis þannig geta neytendur auðveldlega áttað sig á samhenginu á milli vöru og verðs. Þannig verður verðmerking á hillu alltaf að vera alveg við vöruna og eins nálægt henni og mögulegt er þegar verðmerkt er með skilti eða verðlista,“ segir á heimasíðu Neytendastofu.

Þar segir einngi að Neytendastofa ætli að fylgja könnuninni eftir með annarri eftirlitsferð þar sem skoðað verður hvort tilefni er til að beita sektum.


Tengdar fréttir sem þú gætir haft áhuga á að lesa: