- Advertisement -

Sigmundur Davíð forsætisráðherra: Kvótakerfið verji byggðirnar

Atvinnumál „Í öllu falli er ljóst að ef þetta verður, verður það mikið högg fyrir þessi byggðarlög að það getur kallað á sérstakt inngrip stjórnvalda.“

Þetta sagði Sigmundur Davíð Gunnlaugsson forsætisráðherra, í þættinum Sprengisandur á Bylgjunni, þegar hann var spurður hvort slíkt komi til greina vegna þess vanda sem steðjar að Djúpavogi, Húsavík og Þingeyri sökum þess að Vísir hf. hefur afráðið að loka starfstöðvum sínum í þessum byggðarlögum hyggst flytja alla starfsemi til Grindavíkur, þar sem höfuðstöðvar fyrirtækisins eru.

„Ég tel mikilvægt að fiskveiðistjórnunarkerfið sé til þess fallið að verja byggðirnar, það er að segja að ekki verði til staðar sú hætta að atvinnustig heilu landshlutanna hrynji vegna tilfæringa í greininni. Ég veit að sjávarútvegsráðherrann leggur mikið upp úr við endurskoðun fiskveiðistjórnunarkerfisins. Það er mikilvægt fyrir samfélagið allt ekki bara þær byggðir sem yrðu illa úti, því allt helst þetta í hendur.“

Verður gripið til ráðstafana til að lina fyrirsjáanlegt högg þessara byggðarlaga?

Þú gætir haft áhuga á þessum

„Við fylgjumst mjög náið með stöðu mála í byggðarlögunum. Verið er að ræða ákveðnar mótvægisaðgerðir en best yrði ef fyrirtækið færi ekki frá þessum stöðum, allavega ekki strax.“

Þarna talar forsætisráðherra á sömu nótum og Sigurður Ingi Jóhannsson sjávarútvegsráðherra gerði í gær þegar hann sagði meðal annars:

„Hvernig ætlar atvinnugreinin, sjávarútvegurinn, útgerðin að spila með í þessu. Ef þetta verður eingöngu á hendi ríkisins að þá þarf ríkið auðvitað að hafa úr einhverju að spila. Þá gæti verið að við þyrftum að taka aukinn hlut í hlut ríkisins.“

„Ég held að dæmin sanni nú kannski að svona smáskammtalækningar hafa ekki alltaf skilað því sem menn hafa ætlað,“ segir Kolbeinn Árnason, framkvæmdastjóri LÍÚ í samtali við RÚV, einsog sjá má hér.


Tengdar fréttir sem þú gætir haft áhuga á að lesa: