- Advertisement -

Sigurður Ingi segist hvergi að baki dottinn

Sigurjón Magnús Egilsson ritstjóri skrifar:

Heimildir mínar herma að bæði Lilja Alfreðsdóttir varaformaður og Willum Þór Þórsson, fyrrum ráðherra Framsóknar, og nú forseti ÍSÍ íhuga bæði framboð til formannsins hvað sem Sigurður Ingi kýs að gera.

Rétt í þessu heyrði ég viðtal við Sigurð Inga Jóhannsson, formann Framsóknarflokksins. Það var í Speglinum á RÚV. Sigurður Ingi telur sig eiga áfram fullt erindi sem formaður og ætlar því að gefa ekkert eftir.

Þegar hann var spurður hvort hann íhugi stöðu sína sem formaður, í ljósi niðurstöður nýjustu skoðanakannanna sagðist hann gera það. Einkum þegar hann er á hestbaki. Niðurstaðan er samt sú að hann sér ekki að kominn sé tími á hann sjálfan.

Þvert á móti segir hann að nayðsyn sé að veita ríkisstjórninni aðhald. Formaðurinn greip til þess að Kristrún Frostadóttir hafi ekki náð að berja vextina niður. Rétt eins og hún hafi ætlað að gera.

Þú gætir haft áhuga á þessum

Sem fyrr segir sér Sigurður Ingi enga þörf á að flýta miðstjórnarfundi í ljósi stöðu flokksins. Hjá Gallup mælist Framsókn með vel innan við fimm prósenta markið.

Sigurður Ingi fylgist ekki vel með eða er í alvarlegri afneitun. Það er ekkert annað en flokkurinn mælist smánarlega illa. Annað hvort áttar hann sig ekki á að hann muni fá alvarlega keppni um formanninn, haldi hann svona áfram.

Heimildir mínar herma að bæði Lilja Alfreðsdóttir varaformaður og Willum Þór Þórsson, fyrrum ráðherra Framsóknar, og nú forseti ÍSÍ íhuga bæði framboð til formannsins hvað sem Sigurður Ingi kýs að gera.

Næstu vikur verða spennandi hjá félögum í Framsóknarflokknum.


Auglýsing

Tengdar fréttir sem þú gætir haft áhuga á að lesa: