- Advertisement -

Sjúkraliðar lýsa yfir neyðarástandi á bráðamóttöku Landspítalans

Áskorun sjúkraliða vegna neyðarástands á bráðamóttöku LSH

Allir Íslendingar njóta góðs af öflugri bráðamóttöku Landspítalans. Að sama skapi bitnar það á öllum Íslendingum þegar neyðarástand ríkir á bráðamóttökunni. Í gær birtu tugir sjúkraliða sem starfa á bráðamóttöku Landspítalans opið ákall til stjórnvalda. Þar var lýst starfsumhverfi sem enginn starfsmaður á að þurfa að starfa í. Þegar öryggi sjúklinga og velferð þeirra er stefnt í hættu skulu stjórnvöld hlusta. Sjúkraliðar, læknar, hjúkrunarfræðingar og annað starfsfólk er sammála um að ástandið er óboðlegt.

Nú standa yfir stjórnarmyndunarviðræður. Stjórn Sjúkraliðafélags Íslands skorar því á formenn stjórnarflokkanna að í þeim viðræðum verði tekið á málefnum bráðamóttökunnar.  Almenningur á Íslandi vill það og allir stjórnmálaflokkar landsins hafa talað fyrir slíkum aðgerðum. Fyrst og fremst vantar meira fjármagn til að tryggja nauðsynlega mönnun og rétt flæði innan spítalans til framtíðar.  

Þegar sjúklingar fá ekki þá faglegu þjónustu sem þeim ber samkvæmt lögum er rík ástæða til að bregðast við, annars verður sjúklingum áfram stefnt í hættu á bráðamóttöku Landspítalans því þar ríkir neyðarástand. Nú er nóg komið!

Þú gætir haft áhuga á þessum

Auglýsing

Tengdar fréttir sem þú gætir haft áhuga á að lesa: