- Advertisement -

Leiðarar úr leið

Tómas Guðbjartsson skrifaði:

Nú liggja 30 sjúklingar á Landspítala vegna Covid, þar af 7 í lífshættu á gjörgæslu, flestir þeirra í öndunarvél.

Leiðarar stærstu dagblaða landsins sl. sólarhring valda miklum vonbrigðum – og sýna vanmat á því ástandi sem skapast hefur vegna Covid-19 á Íslandi. Leiðarahöfundar virðast telja að bólusetning flestra fullorðinna hérlendis þýði að „alvarleg veikindi séu sjaldgæf“ og „verndi okkur nær algjörlega við ótímabærum dauðdaga“. Þetta stenst ekki skoðun. Nú liggja 30 sjúklingar á Landspítala vegna Covid, þar af 7 í lífshættu á gjörgæslu, flestir þeirra í öndunarvél. Fjórir gjörgæslusjúklinganna eru fullbólusettir. Af þeim 73 sjúklingum sem lagst hafa inn í fjórðu bylgju faraldursins hafa 2/3 verið bólusettir. Þetta sýnir svart á hvítu að bólusetning er engan vegin fullkomin vörn gegn alvarlegum veikindum, hvorki hér á landi né erlendis. Í sömu dagblöðum eru í dag fréttir af krítisku ástandi vegna Covid víða um heim, m.a. frá nánast fullbólusettu Ísrael og í Rússlandi hafa aldrei fleiri látist en i deltabylgju Covid. Það að Danir og Bretar séu að aflétta takmörkunum hjá sér hefur sáralítið vægi hér á landi, enda aðstæður þar allt aðrar og þeir heldur ekki alltaf tekið réttar ákvarðanir í fyrri bylgjum faraldursins.  Vegna ástandsins nú er Landspítalinn á hættustigi og stefnir á neyðarstig – sem er full ástæða til því  öll gjörgæslan í Fossvogi sinnir nú Covid-sjúklingum og hálf gjörgæslan við Hringbraut. Þetta ástand er algjörlega óásættanlegt og bitnar á sjúklingum sem ekki hafa Covid og þurfa hálfbráðar aðgerðir sem krefjast gjörgæslu, t.d. vegna hjartasjúkdóma og krabbameina. Bið þessara sjúklinga er vægast sagt óæskileg. Í þessum töluðu orðum er verið að kalla inn bæði hjúkrunarfræðinga og lækna úr langþráðu sumarfríi til að sinna Covid-sjúklingum sem berjast fyrir lífi sýnu. Fyrir þeim eru þessir leiðarar beiskt meðal sem er vont að kyngja – og skilaboðin úr leið. Það má heldur ekki gleymast í umræðunni að ef veirunni er sleppt lausri þá aukast líkur á því að starfsfólk á LSH sýkist. Þótt veikindin yrðu líklega væg þá gætu sömu einstaklingar ekki sinnt vinnu sinni, t.d. á gjörgæslu eða í fámenn teymum eins og okkar hjarta- og heilaskurðlækna. Þar stöndum við vaktina allan sólarhringinn árið um kring og megum illa við bráðsmitandi Covid-sýningu.

 Vonandi mun það ekki trufla skynsamlegar ákvarðanir íslenskra sóttvarnayfirvalda að stutt er í kosningar – en hingað til hafa þau haldið haus og tekið ákvarðanir sem hafa leitt okkur áfram,  landi og þjóð til heilla.

Þú gætir haft áhuga á þessum

Tengdar fréttir sem þú gætir haft áhuga á að lesa: