- Advertisement -

Pönkast á nauðsynlegum sóttvörnum

Tómas Guðbjartsson skrifar:

Þetta er augljósasta ástæðan fyrir því að sóttvarnalæknir vill nú aflétta sóttvörnum hægt og rólega . Enda getum við á Landspítala ekki kallað inn varaþingmenn líkt og gert var við nýlegar hópsýkingar á Alþingi.

Undanfarna daga hafa ýmsir stigið fram og heimtað að sóttvörnum vegna COVID sé aflétt strax. Í þeim hópi er fyrrverandi dómsmálaráðherra, en þegar hún gegndi því embætti var hún yfirmaður Almannavarna og um leið sóttvarnalæknis. Annar þingmaður Sjálfstæðisflokksins kallar eftir því að hætta að hlusta faglegar ráðleggingar sóttvarnarlæknis og fyrrverandi hæstaréttardómari kallar síðan omicron bylgjuna á Bylgjunni saklaust kvef og sóttvarnir „móðursýki“og „sósíalisma“. Skiljanlega leggja margir við hlustir og sumum eflaust fundist tillögur þessa fólks skynsamlegar. Enda þörf á jákvæðum fréttum og þolinmæði margra á þrotum í faraldri sem staðið hefur í tvö ár – og haft hefur miklar afleiðingar fyrir marga. Það voru jú jákvæðar fréttir – og studdar gögnum – sem bárust um sl. helgi og sýndu að þrátt fyrir háa tíðni smita fer innlögnum á spítalann fækkandi. Þetta þýðir þó alls ekki að það sé skynsamlegt að afnema sóttvarnir með hraði – og reyndar full ástæða til að ganga hægt um gleðinnar dyr. Álagið á Landspítala er enn mjög mikið og hann engan veginn kominn fyrir vind i þessari síðustu bylgju faraldursins.

Það er ágætt að hafa í huga það sem nú er að gerast á Evrópumótnu í handbolta – og sýnir hversu smitandi veiran er. Omicron er þegar búin að eyðileggja mótið og sífellt fleiri kalla eftir því að þessu hópsmitamóti verði hætt. Stór hluti íslenska liðsins og dómarar hafa greinst smitaðir og enn fleiri hafa sýkst í öðrum liðum, eins og því þýska. Þetta hefðu skipuleggjendur átt að sjá fyrir og skipulagt miklu öflugri sóttvarnir – líkt og gert var á heimsmeistaramótinu í Egyptalandi og á Ólympíuleikunum í Tokyo. Þar voru smit fá, enda engir áhorfendur leyfðir. Nú eru 20.000 manns að kjassast í fullum íþróttahöllum og leikmenn knúsa hvern annan eftir hvert mark.

Þú gætir haft áhuga á þessum

Sömu spurningu má spyrja ofangreindan ráðherra, þingmann og fyrrverandi hæstaréttardóma.

Hvað voru skipuleggjendur að hugsa þegar kom að sóttvörnum? Sömu spurningu má spyrja ofangreindan ráðherra, þingmann og fyrrverandi hæstaréttardóma. Ef þau fengju að ráða gætu hæglega komið upp hópsýkingar sem leggja starfsemi Landspítalans á hliðina á nokkrum dögum – og gert honum ómögulegt að sinna neyðarhlutverki sínu. Ljóst er að þótt starfsfólk spítalans væri einkennalítið þá mætir það ekki til vinnu sýkt af Covid – enda skjólstæðingar okkar oftar en ekki veikir fyrir og COVID-sýking reynst þeim banvæn. Þetta er augljósasta ástæðan fyrir því að sóttvarnalæknir vill nú aflétta sóttvörnum hægt og rólega . Enda getum við á Landspítala ekki kallað inn varaþingmenn líkt og gert var við nýlegar hópsýkingar á Alþingi.

Stundum er gott að draga andann djúpt og láta þá sem best þekkja til leiða þjóðina í gegnum öldurótið. Það hefur tekist afar vel hjá sóttvarnarlækni og þríeykinu hingað til – og ekkert í spilunum að svo þurfi ekki að vera áfram. Skoðanaskipti eru nauðsynleg, en á erfiðum tímum þurfa sóttvarnayfirvöld stuðning frá sem flestum – ekki síst þeim sem standa í brúnni og eru hluti af ríkisstjórn.


Auglýsing

Tengdar fréttir sem þú gætir haft áhuga á að lesa: