- Advertisement -

Smekklausir stútungskarlar

Umræðan: Heimir Már Pétursson skrifaði athugasemd við meðfylgjandi grein:

„Smekkleysið ríður ekki við einteyming hjá nokkrum stútungskörlum í svo kölluðum „Samtökum skattgreiðenda“ við að kynda undir útlendingahatrið. Hér er talað eins og þeir útlendingar sem fá greiddar atvinnuleysisbætur HAFI EKKI UNNIÐ SÉR INN RÉTT með greiðslu skatta og gjalda á Íslandi til að mynda í atvinnuleysistryggingasjóð til atvinnuleysisbóta, rétt eins og aðrir á vinnumarkaði.

Byggingariðnaðurinn, ferðaþjónustan og fiskvinnslan, elliheimilin, leikskólarnir og aðrar atvinnugreinar hafa kallað hingað til lands um 60 þúsund manns frá EES svæðinu vegna skorts á vinnuafli í landinu. Þegar árstíðarbundnar sveiflur verða í þessum atvinnugreinum er útlendingunum sagt upp störfum, oft tímabundið, og þá eiga þeir hlutfallslegan rétt miðað við lengd þeirra á íslenskum vinnumarkaði á atvinnuleysisbótum, rétt eins og Íslendingar.

Þú gætir haft áhuga á þessum

Það búa 52 þúsund Íslendingar í útlöndum, þar af um 30 þúsund á Norðurlöndunum. Íslendingar búsettir á EES svæðinu NJÓTA SÖMU RÉTTINDA og heimafólk, þar með til atvinnuleysisbóta, ellilífeyris og annarra bóta. Reikna má með að þúsundir Íslendinga njóti alls kyns greiðslna úr almannatryggingakerfi annarra landa. Á AÐ SENDA ÞÁ ALLA HEIM TIL ÍSLANDS?


Tengdar fréttir sem þú gætir haft áhuga á að lesa: