
„Hvílík ánægja að hlusta á fjármálaráherra vera spurðan spjörunum útúr um efnahagsmál hér heima og erlendis og hafa skynsamleg og þekkingarþrungin svör á reiðum höndum,“ skrifar Þröstur Ólafsson hagfræðingur.
„Á all löngum starfsferli mínum hef ég starfað og fylgst með starfsferli all margra fjármálaréðherra en aldrei heyrt jafn yfirvegaða þekkingu og yfirsýn í þeim málaflokki sem honum hefur verið falið að sinna.
Úr því þessi færsla er komin yfir í stjórnmál og getu margra íslenskra fyrirsvarsmanna á þvi sviði til tjá sig af þekkingu. þá verða vonbrigðin mikil. Halldór Laxness notaði einu sinni orðin „ásköpuð heimska“ yfir ákveðna tegund stjórnmálamanna. Það er sjaldgæft að heyra talað af yfirvegaðri skynsemi á alþingi hvað þá í fjölmiðlum, ef stjórnmál eru annars vegar. Það mætti halda að sú manngerð sem valin er þangað þurfi að vera þrungin að kostum sem sem lýst er vel í fyrrnefndri tilvitnun.“