- Advertisement -

„Þessi framganga bankanna nú er ekki bara vafasöm heldur vart siðleg“

„Þessar vaxtahækkanir hjá stóru bönkunum með litlu millibili vekja upp ýmsar spurningar og tímabært að þingið láti sig þetta varða.“

Bjarni Jónsson.

Stjórnmál „Þjóðin stendur frammi fyrir afarkostum og hefur ekkert annað að leita, þegar stóru bankarnir þrír, þar á meðal þeirra eigin banki, Landsbankinn, hækka vexti útlána á sama tíma án þess að aðstæður hafi breyst aðrar en að bankarnir vilji taka meira til sín og skila enn meiri hagnaði til eigenda sinna. Á sama tíma berst stór hluti lántakenda sem aldrei fyrr í bökkum að láta enda ná saman vegna stökkbreyttra hækkana afborgana húsnæðislána. Þessi framganga nú er ekki bara vafasöm heldur vart siðleg. Það er svo sérstaklega gagnrýnisvert að banka í eigu þjóðarinnar skuli vera beitt með þessum hætti gegn eigendum sínu,“ skrifar Bjarni Jónsson, þingmaður VG og bróðir Ásgeris Seðlabankastjóra, í grein á Vísi.

Í greininni stendur að almenningur sé í greipum fákeppni á bankamarkaði.

„Í fyrra skiluðu stóru bankarnir þrír 83,5 milljarða hagnaði, þeim mesta frá hruni sem voru að uppistöðu vaxtatekjur. Hagnaður Arion banka á árinu 2023 nam 25,7 milljörðum króna og var eigendum greiddur um þrettán milljarða króna arður. Í júní var hagnaður bankans vegna fyrri hluta ársins kominn í 9,9 milljarða,“ skrifar Bjarni og svo þetta:

„Þessar vaxtahækkanir hjá stóru bönkunum með litlu millibili vekja upp ýmsar spurningar og tímabært að þingið láti sig þetta varða. Hér þarf samkeppniseftirlitið einnig að stíga inn og efnahags- og viðskiptaráðherra. Þá þurfa stjórnvöld að hysja upp um sig við innleiðingu EES tilskipana um neytendavernd og fjármálaþjónustu, en á engu sviði er frammistaðan verri en þar.“


Tengdar fréttir sem þú gætir haft áhuga á að lesa: