Viðskilnaður fyrri ríkisstjórnar var með eindæmum slakur. Ekki er að undra að Bjarni Benediktsson hafi stokkið frá borði. Sigurður Ingi þrjóskast enn við. Spurningin er hversu lengi Framsókn vill hafa hann í sinni fremstu víglínu.
Um hversu illa fyrri ríkisstjórn stóð sig ætla ég að sækja til Moggans.
„Í svari Þorbjargar Sigríðar Gunnlaugsdóttur dómsmálaráðherra við fyrirspurn Diljár Mistar Einarsdóttur alþingismanns um erlenda fanga kemur fram að þeim hefur fjölgað verulega á síðustu árum. Árið 2020 voru þeir 26, eða 21% af heildarfjölda fanga í landinu, en í fyrra voru þeir orðnir 50 og hlutfallið hafði tvöfaldast, var orðið 42%.
Þessum vaxandi fjölda fylgir vaxandi kostnaður en einnig margvíslegur annar vandi, meðal annars að þeir taka út refsinguna innan um íslenska fanga sem dregur verulega úr líkum á að vistin geti talist betrunarvist, sem vonir standa þó til.
…enn einn svartur dómur um störf ríkisstjórnar Bjarna Benediktssonar.
Jákvætt er að dómsmálaráðherra virðist átta sig á þessum vanda og segir í svari sínu að stór hluti fanga falli undir samninga sem gerðir hafa verið við önnur ríki um að þeir afpláni í heimalandi sínu. Ekki síður að ráðherra telji að nýta verði þessar heimildir „til fulls“ og að í ráðuneytinu sé verið að vinna að því að fleiri fangar afpláni í heimalandi sínu.
Þá segir í svarinu að ráðherra telji „jafnframt koma vel til greina að semja við önnur ríki um flutning erlendra fanga, ef svo ber undir, að því gefnu að aðstæður í fangelsum uppfylli alþjóðlegar mannréttindaskuldbindingar“. Undir þetta má taka og Ísland ætti að leita allra leiða til að sem flestir erlendir fangar afpláni erlendis, hvort sem er í sínu heimalandi eða ekki. Það mundi í senn bæta ástandið í undirheimunum hér á landi, lækka kostnað við fangelsi og fleira hjá hinu opinbera, auk þess sem slík ráðstöfun hefði að líkindum fælandi áhrif á þá sem velta fyrir sér að koma hingað í vafasömum erindagjörðum.“
„Jákvætt er að dómsmálaráðherra virðist átta sig á þessum vanda,“ segir Mogginn. Hvað þá með núverandi formann Sjálfstæðisflokksins, Guðrúnu Hafsteinsdóttur fyrrum dómsmálaráðherra? Áttaði hún sig ekki á vandanum?
Þessi skrif Moggans eru enn einn svartur dómur um störf ríkisstjórnar Bjarna Benediktssonar.
-sme