- Advertisement -

Útúrsnúningar og ofríki

Það er framkvæmdastjóri SA sem hefur með látalátum reynt að snúa grafalvarlegum kjaraviðræðum upp í leikhús útúrsnúninga og ofríkis.

Sólveig Anna.

Framkvæmdastjóri SA heldur því fram að samningsvilji Eflingar sé enginn. Jarðsambandið er greinilega alveg farið; samninganefnd Eflingar hefur lagt fram þrjú tilboð um kjarasamning og í hvert sinn fært sig nær viðsemjendum okkar, SA. Aftur á móti hefur enginn samningsvilji verið hjá SA og um það ættu öll þau sem tekið hafa þátt í viðræðunum að geta vitnað. Til dæmis ríkissáttasemjari.

Þegar að framkvæmdastjóri SA er spurður af fréttakonu RÚV hvort að SA þurfi ekki að teygja sig lengra í áttina að Eflingu svarar hann með fáránlegum útúrsnúningi og ræðst að samninganefnd Eflingar og klæðaburði meðlima.

Það er leitt að framkvæmdastjóri SA telji sig staddan í einhverri uppsetningu á Upstairs, Downstairs þar sem að yfirráð hans yfir vinnuafli höfuðborgarsvæðisins eru svo æðisgengin að þau ná til klæðnaðar og framkomu. Svo er ekki. Hann er þátttakandi í samningaviðræðum við langstærsta verkalýðsfélag verka og láglaunafólks á landinu, með um það bil 26.000 meðlimi. Þetta félag, Efling, hefur sjálfstæðan samningsrétt sem honum ber að virða. Það er framkvæmdastjóri SA sem hefur með látalátum reynt að snúa grafalvarlegum kjaraviðræðum upp í leikhús útúrsnúninga og ofríkis. Hann virðist hafa talið sér trú um, eða látið telja sér trú um að SGS með Vilhjálm Birgisson í fararbroddi, gerði kjarasamninga fyrir Eflingu. Svo er ekki. Það er löngu tímabært að Halldór Benjamín horfist í augu við þau mistök sem hann ásamt öðrum mönnum gerðu þegar þeir handsöluðu á „maraþonfundum“ sínum fyrir jól að gera grófa tilraun til að svipta Eflingu sjálfstæðum samningsrétti, og neyða formann og samninganefnd félagsins til að taka við kjarasamningi annarra manna og annarra félaga.

Ábyrgð Halldórs Benjamíns er mikil. Vonandi tekst honum sem fyrst að horfast í augu við hana, koma niður á jörðina þar sem að samninganefnd Eflingar dvelur og gera við Eflingar-fólk Eflingar-kjarasamning. Það er varla eftir neinu að bíða?


Tengdar fréttir sem þú gætir haft áhuga á að lesa: