Alþingi:
Jón Gunnarsson tók til máls á Alþingi um Landsvirkjunarmálsins:
„Maður getur nú ekki orða bundist yfir því hvernig menn koma hér fram orðið í ræðustól Alþingis. Þetta er svo sem þekkt aðferðafræði; þegar menn eru komnir út í fúamýri, eru vaðandi skítinn upp í klof eða ofar, reyna þeir að benda á einhverja aðra, það voru einhverjir aðrir sem sendu mig í þessa vegferð. Þetta er þekkt aðferðafræði til að draga athyglina frá kjarna málsins sem snýst auðvitað um framkvæmdina hjá hæstvirtum fjármálaráðherra, hjá stjórn Landsvirkjunar eða hverjum sem er öðrum sem ber hér undir en er á ábyrgð þessarar ríkisstjórnar.
Við skulum bara halda okkur við kjarna málsins þegar við ræðum þessi mál, það er mikilvægt, ekki vera að kasta hér drullu í einhverja aðra sem eru ekki einu sinni í húsi til að svara fyrir sig. Það hefur áður komið fram að þegar lagt var upp með þetta ákvæði á sínum tíma var alveg ljóst í hugum allra að framkvæmdin yrði ekki með þeim hætti sem hún hefur verið. Það væri einhver einn maður sem veldi stjórnarmenn eftir eigin geðþótta eftir tillögum frá uppstillingarnefnd sem hann skipaði sjálfur, einn, og er síðan búinn að fara langt út fyrir allan hefðbundinn ramma í samskiptum sínum við stjórn félagsins. Þetta er það sem þetta mál snýst um og við skulum halda okkur við það málefni.“