- Advertisement -

Vandræðaleg stjórnarandstaða

Sigurjón Þórðarson, þingmaður Flokks fólksins, skrifaði:

Það var sérkennilegt að sitja fund í stjórnskipunar- og eftirlitsnefnd um meðferð forsætisráðuneytisins á erindi um persónulegt málefni þáverandi mennta- og barnamálaráðherra.

Málið liggur ljóst fyrir, en farið hefur verið að lögum og búið að svara fyrir málið margoft á opinberum vettvangi m.a. í þinginu.

Ritara Sjálfstæðisflokksins og formanni nefndarinnar vafðist tunga um tönn þegar hann reyndi að færa rök fyrir því að verja takmörkuðum tíma mikilvægrar nefndar í málið. Ástæðan var auðvitað allt önnur en formaðurinn gaf upp þ.e. verið sé að gæta hagsmuna einstaklings sem óskaði eftir fundi með forsætisráðherra og fyrrverandi menntamálaráðherra. Það birtist skýrt í spurningum stjórnarandstöðunnar, þegar ítrekað var reynt að færa umræðuna að 35 ára gömlu persónulegu máli.

Þú gætir haft áhuga á þessum

Reynt var að toga skýr orð…

Spurningarnar snérust m.a. um hvort það var aðstoðarmaður ráðherrar eða ráðherra sem hafði samband ráðherra eða aðstoðarmann ráðherra, þegar það er ljóst að einu gildi.

Einhverjar spurningar stjórnarandstöðunnar byggðust á augljósum misskilningi um tímalínu málsins og ítrekað var sannsögli forsætisráðherra dregin í efa, án þess að færa fyrir því málefnaleg rök. Málið var sagt skrýtið og spurt langt út fyrir efni fundarins m.a um mögulegt lögbrot fyrrverandi ráðherra og togað teygt um alvarleika málsins. Reynt var að toga skýr orð forsætisráðherra um ámælisverð viðbrögð fyrrverandi menntamálaráðherra yfir á viðkvæma persónulega atburði í lífi Ástu Lóu fyrir mörgum áratugum síðan.

Samantekið þá snýst kjarni málsins um að það liggur ekkert fyrir að trúnaðar hafi verið óskað í fundarbeiðni málshefjanda en þó svo það hefði verið gert þá væri það ekki í samræmi við lög.


Tengdar fréttir sem þú gætir haft áhuga á að lesa: