
Björn Leví Gunnarsson fyrrverandi þingmaður:
Eða er það kannski málið? Að samningurinn geti ekki verið ákjósanlegur nema ef við fáum varanlegar undanþágur? Ef það er málið, þá látum við að sjálfsögðu á það reyna í samningaviðræðum – ekki satt?
„Segjum sem svo að ég sé að kaupa íbúð í fjölbýlishúsi, en ég geri þá kröfu um að kaupa bara íbúðina ef ég myndi fá varanlega undanþágu frá öllum húsfélagsákvörðnum og reglum sem mér gæti mislíkað. Fullt af fólki kaupir nefnilega íbúðir í fjölbýlishúsum og engum dettur í hug að einhver geti fengið varanlega undanþágu frá húsreglunum – nema kannski fólk sem getur ekki hugsað sér að búa í fjölbýli og takmarkar sig við einbýli.
Fólk hættir ekki við að kaupa íbúð í fjöleignarhúsi bara vegna þess að það fær ekki varanlega undanþágu frá húsreglunum. Það metur hvort reglurnar, áhrifin sem það fær og samkomulagið í heild séu ásættanleg. Sama ætti að gilda um umræðu um ESB-aðild: spurningin er ekki hvort Ísland fái ótakmarkaðar varanlegar undanþágur, heldur hvort endanlegur samningur og aðildarkjör séu nægilega góð.
Það er ekkert fullkomin samlíking að bera saman aðildarviðræður við ESB og að kaupa íbúð í fjölbýli – en sú samlíking ætti að vera nægilega skýr til þess að sjá að „varanlegar undanþágur“ rökin eru ekki málefnaleg – hvort sem það er hægt að fá varanlegar undanþágur eða ekki. Það sem skiptir máli er niðurstaðan. Hvað með það þó það sé ekki hægt að fá varanlegar undanþágur ef samningurinn er ákjósanlegur hvort sem er.
Látum það liggja á mili hluta.
Eða er það kannski málið? Að samningurinn geti ekki verið ákjósanlegur nema ef við fáum varanlegar undanþágur? Ef það er málið, þá látum við að sjálfsögðu á það reyna í samningaviðræðum – ekki satt? Og ef það er þannig að engar varanlegar undanþágur fást – og það er það sem einhverjum finnst bara skipta máli – þá hafna viðkomandi aðilar væntanlega bara samningnum. Þetta er ekki flókið – en sýnir það svo skýrt af hverju „engar varanlegar undanþágur“ eru ekki rök til þess að hafna aðildarviðræðum. Ef eitthvað, þá eru það rök með aðildarviðræðum. Því það er eina leiðin til þess að sjá hvort hægt sé að fá varanlegar undanþágur eða ekki.
Ég treysti allavega ekki áliti þeirra sem eru að básúna „engar varanlegar undanþágur“ í þessari umræðu.“