- Advertisement -

Við erum lánsöm þjóð og mikils megnug

Umræðan: Kristrún Frostadóttir forsætisráðherra skrifaði:

Sól fer hækkandi. Og ár er liðið frá myndun ríkisstjórnar Samfylkingar, Viðreisnar og Flokks fólksins.

Ég er þakklát fyrir traustið og stuðninginn á hverjum einasta degi.

Við gerum okkar besta fyrir fólkið í landinu.

Margt hefur gengið vel. Margt getum við gert betur og stundum lendum við í mótvindi.

En við erum samstíga ríkisstjórn í sigri og þraut. Á milli okkar Þorgerðar og Ingu ríkir sérstakt traust og vinátta. Og það er full málefnaleg samstaða á milli stjórnarflokka um stefnuyfirlýsinguna góðu sem við skrifuðum undir á þessum degi í fyrra.

Þetta skiptir máli.

Á fyrsta ári nýrrar ríkisstjórnar hafa vextir lækkað og verðbólga minnkað. Með tiltekt í ríkisfjármálum höfum við helmingað hallann á fjárlögum og lækkað ríkisskuldir um 7,5% af landsframleiðslu.

Á sama tíma pössum við upp á velferðina – byggjum hjúkrunarheimili, eflum meðferðarúrræði, lögum vegi, göngum til verka í orkumálum, fjölgum íbúðum, bætum afkomu eldra fólks og öryrkja, tökum á útlendingamálum og hristum upp í kerfinu til að ríkið virki.

Við erum lánsöm þjóð og mikils megnug. Gleðjumst þegar gengur vel. Skemmtum ekki skrattanum með sundurlyndi – heldur stöndum saman þegar reynir á og herðum okkur þar sem betur má fara.

Þannig byggjum við Ísland.

Ég hlakka til að vinna áfram með samstíga ríkisstjórn og Alþingi Íslendinga á nýju ári.


Tengdar fréttir sem þú gætir haft áhuga á að lesa: