- Advertisement -

Vonandi fer þetta skíta-verkefni beint á ruslahauginn þar sem það á heima

„Síðasta vetur laug Bjarnheiður Hallsdóttir formaður Samtaka ferðaþjónustunnar því að ferðaþjónustan væri „á hnjánum“ eftir Covid í aðsendri grein á Vísi, og líkti Eflingu við „heimagerðar hamfarir„ vegna baráttu láglaunafólks höfuðborgarsvæðisins fyrir mannsæmandi launum. Henni datt ekkert annað í hug en að sturlast úr frekju og bræði þegar að ljóst var að vinnuaflið sem að hún vill láta arðræna á hótelum borgarinnar var tilbúið til að nota lögvarinn rétt sinn og leggja niður störf. Tilbúið til að fara í verkfall til að knýja forhert auðvald eins og Bjarnheiði til að deila meira af arðinum með þeim sem knýja áfram gróðavél ferðaþjónustunnar, félagsfólki Eflingar. Hún laug því líka að leggði félagsfólk Eflingar niður störf, sem eru þeirra stjórnarskrárvörðu grundvallar-mannréttindi, myndi verðbólgan aukast og að fólk yrði atvinnulaust. Semsagt, að réttmæt og sjálfsögð barátta láglaunafólks, að stærstum hluta aðflutts fólks, fyrir betra lífi, fyrir því að eiga möguleika á því að geta gert eitthvað aðeins meira en að skrimmta, væri glæpsamleg árás á lífsgæði allra Íslendinga. Áróður Bjarnheiðar var auðvirðilegur og til ömurlegrar skammar. En sumt fólk er því miður þannig innréttað að það vill frekar ráðast með lygum og svívirðingum á manneskjurnar sem að gera því sjálfu kleift að lifa í vellystingum en að koma vel og mannúðlega fram. Það er sú „menning“ sem fólk eins og Bjarnheiður aðhyllist, samfélagi okkar til óendanlegs skaða,“ skrifaði Sólveig Anna Jónsdóttir, formaður Eflingar.

„Nú ætlar Bjarnheiður að lokka okkur öll til að auglýsa fallega landið okkar fyrir hana. Vill gera okkur öll að „gestgjöfum“ í gróða-veislu hennar og félaga hennar. Vill að við öll hjálpum henni að selja heimaland okkar svo að hún verðir ríkari. Og ríkari og ríkari. Og þetta ætlar hún að gera með algjörlega veruleikafirrtum stjórnvöldum sem eru því sem næst umboðslaus með öllu eftir svik, pretti, lygar og síðast en ekki síst þjófnað á þjóðareign okkar í þágu vina og vandamanna. Stjórnvöldum sem eru þannig „gestgjafar“ fyrir láglaunafólk á höfuðborgarsvæðinu að þeim finnst ekkert að því að fólk sé á hrakhólum á siðlausum leigumarkaði, færandi auðvaldinu stóran part af lélegu laununum sínum, til þess eins að geta tryggt sér þak yfir höfuðið. Stjórnvöldum sem vilja helst, í samkrulli við Bjarnheiði og SA, svipta þetta sama fólk verkfallsréttinum í þeim tilgangi að tryggja auðstéttinni endaleg og algjör yfirráð yfir vinnuaflinu.

Þvílík skömm, þvílíkt siðleysi. Þetta er svo ruglað að það er ekki einu sinni hægt að hlæja að þessu. Vonandi fer þetta skíta-verkefni beint á ruslahauginn þar sem það á heima.“

Þú gætir haft áhuga á þessum

Tengdar fréttir sem þú gætir haft áhuga á að lesa: