
Pawel Bartoszek formaður utanríkismálanefndar Alþingis skrifar:
Allt seinasta sumar unnu hagsmunaaðilar í sjávarútvegi að því að sannfæra almenning um það að greinin myndi gott sem deyja ef hún þyrfti að greiða eðlilegt gjald fyrir afnot af auðlindinni.
Til þess voru fjölmiðlar í þeirra eigu notaðir sem og stjórnmálaflokkar þar sem þeir hafa mestu ítökin. Niðurstaðan: lengsta málþóf Íslandssögunnar.
Lögin voru á endanum samþykkt. Og hvað? Stærstu útgerðir landsins skila áfram góðum hagnaði og greiða milljarða í arð til eigenda sinna. Sem er vel. En hrakspárnar rættust ekki.
Nú er búið að ræsa út sömu vélarnar til að reyna að sannfæra almenning.
Nú er búið að ræsa út sömu vélarnar til að reyna að sannfæra almenning um að það eitt að við förum í viðræður og fáum samning sem þjóðin getur tekið endanlega ákvörðun um, muni kalla fram sömu áhrif og hækkun veiðigjalda átti að gera.
Það er reynt að sannfæra okkur um að engar sérlausnir sé hægt að fá (þrátt fyrir sérlausnir Svía, Finna og Maltverja sem sanna annað). Og svo er reynt að selja okkur það að óvissan ein muni ganga nærri greininni.
Íslensk heimili búa líka við langvarandi og mikla óvissu. Áratugalangur verðóstöðugleiki gerir það að verkum að þau þurfa að velja milli þess að taka á sig óvissu lánveitenda vegna verðlags (í gegnum verðtrygginguna) eða búa við miklu hærri vexti en fólk á meginlandinu (þeir eru nú 8-9% á Íslandi en 3-4% á Evrusvæðinu).
Næst þegar fulltrúar hagsmunaaðilanna mæta í viðtöl og kvarta undan væntanlegri „óvissu“ þarf fólk að fara í heimabankann og skoða mánaðarlegar afborganir fasteignalána. Hvet ykkur til að lesa færslu eftir Gauta B. Eggertsson sem sýndi hvernig Evruvextir gætu lækkað afborganir á nýju 60 mkr. láni um 113 þúsund kr. á mánuði.
Þetta er verðið sem hagsmunaðilarnir eru að segja okkur að við þurfum að borga svo þeir geti búið við öryggi og vissu og við megum ekki einu sinni fá að SKOÐA augljósasta valkostinn.