
Jóhann Þorvarðarson skrifar:
Hann áttar sig greinilega ekki á því að hann sjálfur er hluti hins kerfislæga vanda sem veldur íslenskum ofbeldisvöxtum og hárri verðbólgu. Og hann kann augljóslega ekki að lesa í áratuga langa hagsögu Íslands.

„Eins og myndin sýnir þá hafa stýrivextir á Íslandi að jafnaði verið 7% síðan um aldamót og verðbólgan eftir því. Á sama tíma voru stýrivextir á evrusvæðinu verið undir 2%. Hæst fóru stýrivextir á Íslandi í 22% á meðan þeir risu aldrei yfir 4% á evrusvæðinu.
Ekki þarf að hugleiða málin lengi til að átta sig á válegri eignatilfærslunni frá þeim sem skulda og yfir til auðmanna sem lána á íslenskum ógnarvöxtum. Og vart þarf að hafa orð á vinnusliti einstaklinga sem fylgir því að standa skil á okurvöxtum starfsævina út og langt fram eftir ellinni. Og margur skuldarinn losnar ekki þó kominn sé undir græna torfu. Þetta er séríslensk ánauð, þrælkunarbúðir ævina út!
Hálstak auðmanna á almenningi verja bæði Vilhjálmur Birgisson og Sólveig Jónsdóttir.
Hálstak auðmanna á almenningi verja bæði Vilhjálmur Birgisson og Sólveig Jónsdóttir, svokallaðir forsvarsmenn láglaunafólks með afstöðu sinni til komandi þjóðaratkvæðagreiðslu. Þau vilja ekki að Íslendingar fái að sjá hvernig mögulegur samningur við Evrópusambandið geti litið út. Og almúginn má alls ekki taka þátt í málefnalegri umræðu um hugsanlega aðild. Þau brjótast um á hæl og hnakka, eru fúl á móti og segja þvermóðskuleg nei. Með afstöðunni og bolabrögðum þá eru þau beinlínis að vinna gegn hagsmunum félagsmanna sinna, möguleikanum á betra lífi. Þau hljóta að segja af sér sem formenn Verkalýðsfélags Akraness og Eflingar því ekki eru þau að vinna að hag félagsmanna með neikvæðni sinni.
Hlægilegastur er þó hann Vilhjálmur þegar hann sagði í gær að við getum alveg sjálf náð tökum á verðbólgunni og lækkað krónuvexti niður í evruvexti. Hann áttar sig greinilega ekki á því að hann sjálfur er hluti hins kerfislæga vanda sem veldur íslenskum ofbeldisvöxtum og hárri verðbólgu. Og hann kann augljóslega ekki að lesa í áratuga langa hagsögu Íslands.
Ég ætla að kjósa já, vil sjá hvað er í boði. Ég er tilbúinn að horfa út fyrir eigin girðingu.“