- Advertisement -

238.000 gistinætur í október

Ferðaþjónusta Enn er hröð fjölgun ferðafólks á Íslandi. Í október voru seldar 238.000 gistinætur, sem er 30 prósent aukning frá október í fyrra.

Gistinætur erlendra gesta voru 88 prósent af heildarfjölda gistinátta í mánuðinum en þeim fjölgaði um 40 prósent frá sama tíma í fyrra á meðan gistinóttum Íslendinga fækkaði um 12 prósent

Flestar gistinætur á hótelum í október voru á höfuðborgarsvæðinu eða 165.900 sem er 29 prósent aukning miðað við október 2014. Næst flestar voru gistinætur á Suðurlandi eða um 34.400. Erlendir gestir með flestar gistinætur í október voru; Bretar með 44.300, Bandaríkjamenn með 28.800 og Þjóðverjar með 12.700 gistinætur.

Á tólf mánaða tímabili nóvember 2014 til október 2015 voru gistinætur á hótelum 2.718.740 sem er fjölgun um 20 prósent miðað við sama tímabil ári fyrr.

Sjá nánar hér, á vefsíðu Hagstofunnar.


Tengdar fréttir sem þú gætir haft áhuga á að lesa: