- Advertisement -

Sjálftökufólkið tekur ekki þátt í niðurfærslunni

Nýja flensan getur valdið verðfalli, loðnan bregst og samdráttur er í ferðaþjónustu.

Ragnar Önundarson skrifar:

Ef gengi krónunnar er of hátt skráð, t.d. vegna aflabrests, verðfalls eða þess að við skiptum í kjarasamningum meiri tekjum á milli okkar en þjóðartekjunum nemur, þá versnar hlutfallið milli gjaldeyristekna og -gjalda og þar með verður skortur á gjaldeyri, sem leiðir til þess að hann hækkar í verði. Það er kallað gengislækkun. Kaupmáttur okkar allra lækkar, við tökum höggið saman, eins og sannir jafnaðarmenn. Nýja flensan getur valdið verðfalli, loðnan bregst og samdráttur er í ferðaþjónustu.

Ef menn búa hinsvegar við gjaldmiðil sem sveiflast m.v. þarfir annarra landa, t.d. Þýskalands (sem evran gerir að verulegu leyti) þá týna útflutningsfyrirtækin (þmt. ferðaþjónustu-fyrirtækin sem flytja náttúruupplifun út og afla á móti gjaldeyris) tölunni. Starfsfólkið missir vinnuna og einhver sem þorir þarf að stofna nýtt félag frá grunni, sem reynslan sýnir að er tímafrekt stórmál. Þess vegna er mikið atvinnuleysi viðvarandi í jaðarríkjum evrunnar, sem líða fyrir það að hún fylgir iðnríkjum miðju ESB.

Þú gætir haft áhuga á þessum

Að gæla við hugmyndir um aðild að ESB og upptöku evru, sem mundu valda því að þeir sem missa vinnuna við gjaldþrot útflutningsfyrirtækjanna þjáist einir, á meðan allir aðrir halda áfram að eyða gjaldeyrisvarasjóðum landsins þar til það kemst í þrot, væri réttnefnt glapræði, ekki síst eins og staðan er í Evrópu í dag.

Að stofna fyrirtæki og koma því í lífvænlegt horf er mikið mál, tekur langan tíma og er áhættusamt. Þrotlaus vinna og margar svefnlitlar nætur. Þetta er ástæða þess að atvinnuleysi yrði mikið og langvarandi, ef land með einhæft atvinnulíf og ólíkt þeim iðnríkjum Vestur-Evrópu sem ráða gengi evrunnar, tæki hana upp. Svonefnd „niðurfærsluleið“ yrði eina úrræðið, þ.e. lækkun launa allra nema þeirra sem ráða launum sínum sjálfir. Sjálftökufólkið tekur nefnilega ekki þátt í niðurfærslunni.


Tengdar fréttir sem þú gætir haft áhuga á að lesa: