- Advertisement -

Nú ætlar nýja kennitalan að reisa sér monthús

Það er ekki ætlast til ráðdeildar í rekstri banka á Íslandi.

Marinó G. Njálsson skrifaði:

Landsbankinn ætlar að vera um 24 ár að borga upp nýjar rándýrar höfuðstöðvar með sparnaðinum af flutningunum. Ef ég kæmi í bankann og bæði um lán á þessum forsendum, myndi áhættustýring bankans og lánanefnd örugglega hafna beiðninni, þar sem forsendur væru óljósar og óvissuþættir um framtíðina væru of margir.

Áhugavert er að sjá í frétt um málið, að bankinn segist vera með 670 starfsmenn á höfuðborgarsvæðinu sem muni vinna í nýju höfuðstöðvunum. Miðað við 11,8 ma.kr. byggingarkostnað, þá þýðir það að hvert vinnupláss mun kosta að jafnaði 17,6 m.kr. og síðan þarf að taka tillit til innrileigu vegna fjármagnskostnaðar, afskrifta, viðhalds og reksturs hvers vinnupláss. Kæmi mér ekki á óvart að þetta væru dýrustu vinnupláss í þjónustustarfsemi á Íslandi. Ég yrði síðan hissa ef 500 af þessum starfsmönnum muni nokkru sinni horfa í augun á viðskiptavini og því skiptir engu máli hvort viðkomandi er með starfsaðstöðu í 17,6 m.kr. vinnuplássi við höfnina í Reykjavík, í einhverju útibúi bankans á landsbyggðinni, eða í ódýru skrifstofuhúsnæði annars staðar á Reykjavíkursvæðinu. Þetta seinna tvennt væri ekki eins mikill glamúr, en sýndi þá ráðdeild í rekstri sem ætlast er til af banka.

Þú gætir haft áhuga á þessum

Taka áhættu í rekstri og blóðmjólka viðskiptavinina.

Nei, alveg rétt. Það er ekki ætlast til ráðdeildar í rekstri banka á Íslandi. Vitleysa er þetta í mér. Saga íslenskra banka sýnir, að þeir halda að þeir séu svo mikilvægar stofnanir, að þeir eigi að sólunda fé. Eyða því í óþarfa eins og að reisa sér minnisvarða. Taka áhættu í rekstri og blóðmjólka viðskiptavinina. Þetta eru nefnilega sjálftökustofnanir, sem geta gert það sem þeim sýnist, vegna þess að fari eitthvað úrskeiðis, þá útvega stjórnvöld þeim bara nýja kennitölu og viðskiptavinurinn borgar. Sumir hafa að vísu lært af reynslunni, en það hafa stjórnendur Landsbankans ekki gert.

Er ekki nóg, að við höfnina sé einn minnisvarði um stórmennskuæði stjórnenda Landsbanka Íslands sem síðar fékk nafnið Landsbankinn? Muniði eftir þessu?

„Jafn­framt hef­ur Portus ákveðið að kaupa all­an bygg­ing­ar­rétt á byggingarreitnum fyr­ir versl­un, þjón­ustu og íbúðir og verður vænt­an­lega stofnað sér­stakt fé­lag um þá upp­bygg­ingu. Þetta fé­lag mun vera ábyrgt fyr­ir því að fimm stjörnu alþjóðlegt hót­el rísi við hlið tón­list­ar­húss­ins og ráðstefnumiðstöðvar­inn­ar og mun jafn­framt eiga að hluta eða öllu leyti öll önn­ur hús og bíla­geymsl­ur á reitn­um.“

Björgólfur Guðmundsson, stjórnarformaður Landsbanka Íslands, ætlaði að redda fjármögnun fyrir framkvæmdirnar, en við vitum öllu hvernig það endaði. Þjóðin borgaði og Reykvíkingar fengu sérstakan reikning.

Nú ætlar nýja kennitalan að reisa sér monthús á einni dýrustu lóð landsins og að sjálfsögðu er það þjóðin sem borgar, því þjóðin á bankann.

Greinin birtist á Faebooksíðu Marinós.


Tengdar fréttir sem þú gætir haft áhuga á að lesa: