Það hikar ekki við að beita ritskoðun gegn samborgurum sínum.
Birgir Dýrfjörð skrifaði:
„Nú er komin sú staða á Íslandi að fólk sem álítur sig styðja lýðræði ætlar samt að styðja fyrirlitlegan Fasisma og skoðanakúgun.
Það hikar ekki við að beita ritskoðun gegn samborgurum sínum.
Það styður að öllum, sem eru því ekki sammála verði bannað að afla sér upplýsinga og mynda sér skoðun.
Það hefur myndað samtök um að banna mér og öðrum sjálfstæða skoðanamyndun um okkar eigin mál.
Ég vona að þessi háttsemi sé ekki í samræmi við lífsskoðun þessa fólks heldur sé hún fljótfærni, að það hafi ekki áttað sig á því hvers konar stjórnarhætti það er að taka þátt í að innleiða á Íslandi.
Ég bið þetta fólk að staldra við og hugsa málin.
ES:
Norska þjóðin hefur tvisvar fellt samning við ESB.