Jón Bjarnason, fyrrum ráðherra, skrifaði á eigin bloggsíðu:
„Hún lætur ekki mikið yfir sér fréttin í DV 22- 24 júní 2012 um „brúnu umslögin“. Enda hundruð ef ekki þúsndir þeirra sem þáðu boð ESB þöglir um. Fjöldi samtaka og einstaklinga fékk slík boð.
Ef ég man rétt höfnuðu Bændasamtökin slíku boði og sögðust geta kostað sitt fólk sjálf eins og þyrfti. Einstaka sveitarstjórnarmenn höfnuðu boðinu og voru litnir hornauga fyrir.
Fréttin er bara toppur á ísjakanum hjá einni „stærstu ferðskrifstofu“ þessara ára, Evrópustofu. Hér er sýnishorn:
„Leynd yfir nafnalista“

„Leynd hvílir yfir lista með nöfnum þeirra sveitarstjórnarmanna sem þáðu boð Evrópusambandsins um ferð til Brussel fyrr í mánuðinum.
Ferðin var farin í þeim tilgangi að kynna sambandið fyrir sveitarstjórnarmönnum og hvaða áhrif aðildarviðræðurnar og hugsanleg aðild að sambandinu hefði á sveitarstjórnarstigið hér á landi.
Samkvæmt upplýsingum frá sendiskrifstofu Evrópusambandsins hér á landi ríkir trúnaður um gögn á borð við nafnalistann og er því ekki hægt að afhenda hann, þar sem um persónulegar upplýsingar er að ræða.
Slíkar upplýsingar séu aldrei afhentar þriðja aðila.
Ferðin sem um ræðir var farin dagana 18.–20. júní og var öllum sveitarstjórnum landsins boðið að senda fulltrúa í ferðina.
Samband íslenskra sveitarfélaga sendi auglýsingu fyrir ferðina á aðildarfélög sambandsins en hafði samkvæmt upplýsingum frá framkvæmdastjóra þess enga aðkomu að skipulagi ferðarinnar. Samkvæmt auglýsingunni og gögnum um ferðaskipulagið fengu þeir sem þáðu boðið hótelgistingu á fjögurra stjörnu hóteli og dagpeninga meðan á heimsókninni stóð.“
„Brúnu umslögin“
„Samkvæmt heimildum DV fengu fulltrúarnir dagpeningana afhenta í reiðufé sem hverjum og einum var afhent í umslagi, eins og venjan er hjá Evrópusambandinu þegar dagpeningar eru greiddir út til aðila sem ekki starfa sjálfir fyrir sambandið“