- Advertisement -

Leggið nú öll spilin á borðið

Lilja Alfreðsdóttir, formaður Framsóknarflokksins, skrifar:

„Nú þarf ríkisstjórnin að leggja öll spil á borðið. Er búið að semja um mögulega varanlega sérlausn fyrir Ísland?

Utanríkisráðherra Íslands: Já.

Forsætisráðherra Hollands: Nei.

Hvað er rétt?

Til að þjóðin geti tekið upplýsta ákvörðun um að hefja á ný aðildarviðræður við Evrópusambandið, þá þarf ríkisstjórnin að leggja öll spil á borðið. Í Morgunblaðinu er greint frá því að forsætisráðherra Hollands hafi staðfest, að ríki sem ganga í Evrópusambandið verði að lúta sameiginlegri sjávarútvegsstefnu sambandsins. Á sama tíma hefur utanríkisráðherra Íslands sagt að fulltrúar Evrópusambandsins hafi rætt möguleikann á varanlegum sérlausnum fyrir Ísland.

Utanríkisráðherra segir orðrétt: „Þetta er ekki í samræmi við mín samtöl, meðal annars við Hollendinga og mína kollega.”

Ef svo er, vakna eðlilegar spurningar:

1. Hvaða samskipti hafa átt sér stað milli íslenskra stjórnvalda og fulltrúa Evrópusambandsins?

2. Eru til minnisblöð, fundargerðir eða önnur gögn sem varpa ljósi á þessi samskipti?

3. Er það ekki áhyggjuefni að skilningur utanríkisráðherra Íslands um eitt stærsta hagsmunamál þjóðarinnar er annar en forsætisráðherra Hollands?

Þjóðin á rétt á skýrum svörum áður en gengið verður til þjóðaratkvæðagreiðslu. Upplýst umræða byggist á staðreyndum, ekki mismunandi túlkunum eða óstaðfestum væntingum.

Það er því eðlileg krafa að ríkisstjórnin birti öll gögn sem varða samskipti hennar við Evrópusambandið um mögulegar undanþágur eða sérlausnir í sjávarútvegsmálum.

Gagnsæi styrkir lýðræðið og eykur traust.“

Tenglar hér að neðan á fréttir tengdar efninu:

Tenglar.


Tengdar fréttir sem þú gætir haft áhuga á að lesa: