- Advertisement -

Aldurssamsetning þjóða verður óhagstæð og skattstofnar veikjast

Hilmar Þór Hilmarsson prófessor við Háskólann á Akureyri.

Hilmar Þór Hilmarsson prófessor skrifar fína grein í Mogga dagsins. „Evran og fólksflóttinn, heitir greinin. Hér eru tveir valdir kaflar úr greininni:

„Yngsta og best menntaða fólkið í hverju landi er oft hreyfanlegast enda gjaldgengast á alþjóðlegum vinumarkaði. Þegar efnahagsáföll dynja yfir og mikill fjöldi ungs fólks flytur úr landi lækkar fæðingartíðni. Aldurssamsetning þjóða verður óhagstæð og skattstofnar veikjast vegna þess að ungt vel menntað fólk hefur flutt til annars lands og starfar og greiðir skatta þar. Við þessar aðstæður flyst líka þekking úr landi sem hefur neikvæð hrif á langtímahagvöxt.

Þegar áföll verða í efnahagslífinu þarf aðlögun. Spurningin er hvort gjaldmiðillinn taki hluta höggsins eða almenningur. Veiking gjaldmiðilsins er hraðvirk aðlögun í gegnum verðlag.

Þú gætir haft áhuga á þessum

Vægi Íslands væri enn minna.

Í kreppunni 2008/9 þurftu Eystrasaltsríkin að halda gengi sínu föstu enda skilyrði ESB fyrir upptöku landanna á evrunni síðar. Þau þurftu að ráðast í svokallaða innri gengisfellingu (e. internal devaluation) samfara miklum niðurskurði í ríkisfjármálum með skelfilegum afleiðingum fyrir lífskjör fólksins sem þar býr. Fyrir vikið yfirgáfu margir löndin, mest ungt og betur menntað fólk.“

Svo er það seinni kaflinn:

„Þegar Seðlabanki Evrópu ákveður peningamálastefnu sína hafa lönd eins og Eystrasaltsríkin lítið vægi vegna smæðar sinnar. Vægi Íslands væri enn minna. Vægi stærsta hagkerfisins, Þýskalands, er hins vegar mikið. Seðlabanki Evrópu í Frankfurt starfar í raun líkt og seðlabanki Þýskalands, Bundesbank, gerði að því leyti að megináherslan er lögð á stöðugt verðlag. Seðlabanka Evrópu er líka fyrst og fremst stjórnað af sérfræðingum. Það má segja að búið sé að aðskilja lýðræðið frá allri hagstjórn innan ESB. Peningamálastjórn er í höndum seðlabanka með þröng markmið auk þess sem stjórn ríkisfjármála eru þröngar skorður settar.“


Tengdar fréttir sem þú gætir haft áhuga á að lesa: