- Advertisement -

Íslenskir vinstri menn óbilandi í stuðningi við hverskyns hryðjuverkasamtök

Stjórnmál:

Brynjar Níelsson borgarfulltrúi skrifaði þessa ómótsæðilegu grein:

„Íslenskir vinstri menn eru sérstakt rannsóknarefni. Þeir telja sig tilheyra frjálslyndu öflunum og séu að berjast gegn fasisma. Á sama tíma vilja þeir takmarka tjáningarfrelsi þeirra sem eru á annarri skoðun og helst koma þeim á bak við lás og slá. Tærari mynd fasisma er varla til. Þess vegna mótmæla þeir fyrir utan bandaríska sendiráðið til stuðnings stjórnvöldum á Kúbu sem hafa fangelsað og myrt pólitíska andstæðinga sína jafn lengi og ég hef lifað og ekki er ég með yngstu mönnum.

…um mikilvægi þess að drepa samkynhneigða umsvifalaust og annað ofbeldi, einkum gegn konum, sem okkur er fjarlægt.

Þú gætir haft áhuga á þessum

Íslenskir vinstri menn eru óbilandi í stuðningi við hvers kyns hryðjuverkasamtök í nafni Islam og veifa fánum þeirra við hvert tækifæri. Sama á við aðra óeirða-og ofbeldisseggi sem gætu verið ógn við vestrænt lýðræði. Þótt þeir réttlæti ekki alltaf ofbeldið með berum orðum er stuðningur við þessi öfl áberandi með ýmsum hætti. Þeir ráðast að miklu offorsi gegn þeim sem tjá einfaldan sannleika um menningarmun Islam og vestrænna lýðræðisríkja. Þeir andmæla aldrei orðræðu og ofbeldi stjórnvalda í Íran gegn eigin borgurum og meira að segja sumir haldið því fram að réttindi kvenna þar á bæ sé meira en kvenna á Íslandi. Og láta sem ekkert sé þegar kemur hér til lands háttsettur maður í heimi múslima og heldur ræðu í moskunni við Skógarhlíð um mikilvægi þess að drepa samkynhneigða umsvifalaust og annað ofbeldi, einkum gegn konum, sem okkur er fjarlægt. Meira að segja heyrist ekki boffs í vinstri mönnum sem hafa yfirtekið hinsegin samtökin.

Mér sýnist samfylkingarmenn
og aðrir sem telja sig jafnaðarmenn…

Sumir segja að þetta eigi eingöngu við um fámenna hópa róttæka vinstrisins sem enginn kýs lengur en það er öðru nær. Mér sýnist samfylkingarmenn og aðrir sem telja sig jafnaðarmenn standa fremstir í stafni í baráttunni gegn tjáningarfrelsinu og í stuðningi við öfgaöfl, oft með þögninni, sem reyna að grafa undan vestrænu lýðræði. Systurflokkar Samfylkingarinnar á Norðurlöndum eru ekki svona glámskyggnir og tengslarof við veruleikann ekki svona mikið. Að auki vita norrænir jafnaðarmenn, öfugt við íslenska, hvernig verðmæti verða til og ekki sé hægt að reka ríki og sveitarfélög með tapi endalaust.“


Tengdar fréttir sem þú gætir haft áhuga á að lesa: