- Advertisement -

Samkeppnisstöðu atvinnulífisins fórnað fyrir Miðflokkinn

Stjórnmál:

Þorsteinn Pálsson hefur skrifað nýja grein á dv.is. Þar fer hann gagnrýnum orðum að sínum gamla flokki, Sjálfstæðisflokknum:

Í síðustu viku var greint frá því að einn af þingmönnum sjálfstæðismanna hefði farið fram á að utanríkisráðherra upplýsti um tiltekin fjarskiptatengsl, sem leynd hvílir yfir vegna öryggis ríkisins.

Þú gætir haft áhuga á þessum

Líta verður á þetta sem klaufaskap. Og klaufskan væri bara til að brosa að ef ekki vildi svo til að í hlut á fremsti sérfræðingur þingflokks sjálfstæðismanna um utanríkismál og öryggi ríkisins.

Klaufskan verður þannig táknræn fyrir þau miklu umskipti í íslenskri pólitík að Sjálfstæðisflokkurinn er ekki lengur kjölfesta í þeirri áratuga utanríkispólitík að tryggja viðskipti og öryggi landsins í nánu bandalagi við þær þjóðir sem standa vörð um viðskiptafrelsi og vestræn gildi. Við gerum þetta sjálf er nýi boðskapurinn.

Kjölfestan verður að spunakerlingu

Ný forysta sjálfstæðismanna hefur ítrekað staðfest að undanförnu að flokkurinn geti ekki, að því er virðist vegna innri sundrungar, stutt snurðulausa framkvæmd samningsins um aðild Íslands að innri markaði Evrópusambandsins.

Þegar kemur að því að taka afstöðu til lögfestingar á bókun 35, sem þáverandi utanríkisráðherra flokksins lagði fyrst fram, snýst þingflokkurinn eins og spunakerling.

Þetta er hin hliðin á því mati meirihluta þingmanna Sjálfstæðisflokksins að hann verði að bergmála stefnu Miðflokksins bæði í utanríkismálum og efnahagsmálum til að halda sjó. Í því reiptogi er utanríkispólitískum hagsmunum og samkeppnisstöðu Íslands fórnað.

Ekki heil brú í röksemdafærslunni

Helsta röksemd talsmanna Sjálfstæðisflokksins gegn fullri aðild að Evrópusambandinu voru reglur þess um innri markaðinn. Þeim var líkt við ógnarstjórn Stalíns, sem myndi drepa verðmætasköpun í landinu í dróma.

Á sama tíma staðhæfði formaðurinn að EES-samningurinn væri mikilvægasta samkomulag sem Ísland hefði gert við aðrar þjóðir. En hann er einmitt uppistaðan og ívafið í öllu regluverki Evrópusambandsins.

Með öðrum orðum: Það var ekki heil brú í röksemdafærslunni. Enginn gat vitað með vissu hver línan var.

Nú er formaðurinn svo kominn á flótta frá lögfestingu bókunar 35. Flokkur sem hleypur þannig undan merkjum stendur ekki lengur vörð um EES-samninginn og samkeppnisstöðu atvinnulífsins.

EFTA-dómstóllinn mikilvægari en Alþingi

Andstaða Miðflokks og Sjálfstæðisflokks við fulla Evrópusambandsaðild var líka reist á fullyrðingum um að það samræmdist ekki fullveldi landsins að viðurkenna alþjóðlega dómstóla þótt um sé að tefla alþjóðlegar leikreglur, sem við höfum með samningum tryggt okkur aðild að til að bæta samkeppnisstöðuna.

Nú ber svo við að sömu flokkar telja fráleitt að breyta lögum í samræmi við dóm Hæstaréttar Íslands til að verja íslenska hagsmuni. Ekki er lengur mark takandi á æðsta dómstóli landsins. Eina valdið sem þeir viðurkenna í augnablikinu er EFTA-dómstóllinn. Dómsvald hans er nú mikilvægara en löggjafarvald Alþingis.

Flokkurinn sem áður var utanríkispólitísk kjölfesta landsins birtist þannig eins og rótlaust þang, sem sogast fram og til baka eftir öldufalli Miðflokksins.

Forystan fórnar atvinnulífinu fyrir Miðflokkinn

Kjarni málsins er Þessi: Sjálfstæðisflokkurinn getur ekki vegna innri veikleika átt atbeina að því að tryggja einstaklingum og fyrirtækjum þau réttindi, sem felast í aðild að innri markaði Evrópusambandsins.

Þetta eru um leið skýr skilaboð til atvinnulífsins. Formaðurinn segir einfaldlega að atvinnulífið geti ekki lengur treyst Sjálfstæðisflokknum til að verja hagsmuni þess og samkeppnisstöðu á mikilvægasta markaðssvæði landsins.

Í þessu efni talar formaðurinn ekki neina tæpitungu: „Það er ríkisstjórnarinnar að ákveða.“ Skilaboðin til atvinnulífsins eru þessi: Við höfum ekki skoðun vegna innri sundrungar. Héðan í frá verður atvinnulífið að treysta á utanríkispólitíska forystu Viðreisnar í ríkisstjórnarsamstarfi með Samfylkingu og Flokki fólksins.

Miðflokkurinn hefur lengi barist fyrir því að setja EES-samninginn í uppnám og koma Íslandi þannig út úr öllu Evrópusamstarfi eftir línu bandarísku MAGA-hreyfingarinnar. Og meirihluti þingmanna Sjálfstæðisflokksins sýnist ætla að feta í þau spor þótt ýmsir séu hikandi.

Það var eins gott fyrir atvinnulífið að þjóðin hafnaði gömlu stjórnarflokkunum í síðustu kosningum.

Vel ort utanríkispólitísk öfugmælavísa

Í alheims tollastríði telur Sjálfstæðisflokkurinn að það sé andstætt íslenskum hagsmunum að landið eigi aðild að öflugasta tollabandalagi fríverslunarþjóða í heiminum.

Sjálfstæðisflokkurinn vill nú elta Miðflokkinn og fara með Ísland í þveröfuga átt. Nýja utanríkisviðskiptastefnan felst í því að gera fríverslunarsamning við Trump-stjórnina, sem gerir ekki lengur fríverslunarsamninga.

Utanríkispólitískar öfugmælavísur verða ekki betur ortar.

Velja óvissu í stað öryggis í samstarfi við fríverslunarþjóðir

Bandaríkin eru nú í forystu fyrir ofurtollum og viðskiptahindrunum og hafna með öllu alþjóðlegum leikreglum um viðskipti, sem tryggja stöðu minni þjóða jafnt sem þeirra stærri.

Það sem hættulegra er: Utanríkisstefna ríkisstjórnar Bandaríkjanna felst í því að beita ofurtollum eins og vopnum til að knýja minni þjóðir til undirgefni. Sigur demókrata í þingkosningum sýnist ekki breyta þessari stefnu ríkisstjórnar Bandaríkjanna.

Til að tryggja hagsmuni sína í þessum breytta heimi sækja aðrar þjóðir við Atlantshafið eftir nánara samstarfi við bandalag þeirra Evrópuþjóða, sem standa vörð um fríverslun og rótgróin vestræn gildi.

Ný forysta Sjálfstæðisflokksins vill á hinn bóginn stefna Íslandi meðvitað eða ómeðvitað út í óvissuna.

(Var að hugsa um stytta grein Þorsteins – en hætti við. -sme)


Tengdar fréttir sem þú gætir haft áhuga á að lesa: