- Advertisement -

Vændi í Reykjavík: Herbergi 214

Stjórnmál:

Dagbjört Hákonardóttir þingmaður í Samfylkingu skrifaði:

„Ég hef svo sem ekki mikinn smekk á því þegar fólk er að draga sínar persónulegu aðstæður inn í þingræðu en ég ætla nú samt sem áður að fá að segja það hér og ég er ekki fyrsta manneskjan til að segja frá því hvar hún býr. Ég er þingmaður Reykjavíkur, Reykjavíkurkjördæmis norður. Ég bý í Holtunum og hef búið þar um árabil. Þetta er gott hverfi og það er gott að búa þarna. Ég þekki fólkið í kringum mig og þarna er gott samfélag þar sem mér líður almennt vel og hef alið upp börnin mín. Það er dálítið mikil umferð og fólk keyrir hratt en það er ekki umfjöllunarefnið hér.

Kaffihúsið í hverfinu mínu heitir Reykjavík Roasters og er í Brautarholti. Þetta er kaffihúsið sem ég fór á með litla strákinn minn þegar við vorum í fæðingarorlofi saman 2017, þar sem fólkið í hverfinu hittist og maður fylgdist með spenntum ferðamönnum á leið inn í daginn sinn að upplifa einhverjar æðislegar ferðir á Íslandi. Fyrir utan þetta kaffihús er herbergi 214. Það er herbergi á jarðhæð, og maður sér það bara þegar maður situr, sem hefur verið vettvangur skipulagðrar brotastarfsemi steinsnar frá því þar sem ég lifi minn venjulega dag, þar sem eru konur allan sólarhringinn fastar í því að taka á móti fólki sem beitir þær ofbeldi gegn greiðslu, svo klukkutímunum skiptir. Þetta er ekki bara í herbergi 214.

Þetta er líka í Túnunum þar sem lögreglunni hefur ekki gefist kostur á að fara og rannsaka grun um mansal vegna þess að sannanir þóttu ekki óyggjandi, þrátt fyrir að það sé látlaus umferð af bílum allan sólarhringinn, þar sem verið er að sækja og skutla fólki af öllum toga, hvort sem það eru viðskiptavinir eða þolendur. Nei, það var ekki hægt að rannsaka það. Það var ekki veitt heimild fyrir því.“


Tengdar fréttir sem þú gætir haft áhuga á að lesa: