- Advertisement -

Danmörk: Vinstri flokkarnir vinna á

Það stefnir í vinstri-miðjustjórn í Danmörku í vor.

Fréttaskýring eftir Gunnar Smára:

Það er helst að frétta frá Danmörku þar sem kosið verður í vor eða snemmsumars að Danski þjóðarflokkurinn er að tapa fylgi samkvæmt könnunum en vinstri flokkarnir allir að vinna á. Hér er nýjasta könnunin (innan sviga breytingar frá kosningum):

  • Sósíaldemókratarnir: 28,9% (+2,6)
  • Enhedslisten: 9,3% (+1,5)
  • Radikale Venstre: 6,8%(+2,2)
  • Sósíalíski þjóðarflokkurinn: 6,2% (+2,0)
  • Græningjar: 3,1% (–1,7)
  • Rauða blokkin samtals: 54,3% (+6,6)
  • Venstre: 19,0% (–0,5)
  • Danski þjóðarflokkurinn: 15,0% (–6,2)
  • Íhaldsflokkurinn: 4,3% (+0,9)
  • Liberal Alliance: 4,1% (–3,4)
  • Nye Borgerlige: 2,0% (+2,0)
  • Kristilegir demókratar: 0,9% (+0,1)
  • Klaus Riskær Pedersen: 0,1% (+0,1)
  • Bláa blokkin samtals: 45,4% (–7,0)

Auk þjóðarflokksins eru Liberal Alliance, einskonar Viðreisn/Björt framtíð að tapa fylgi og Græningjar eru eini flokkur rauðu blokkarinnar sem tapar fylgi. Aðrar breytingar eru vart mælanlegar. Það stefnir í vinstri-miðjustjórn í Danmörku í vor, undir forystu sósíaldemókrata sem eru á hraðleið til hægri.


Tengdar fréttir sem þú gætir haft áhuga á að lesa: