- Advertisement -

Er leikurinn að gera eftirlitsstofnanir vanbúnar og vanfjármagnaðar?

Þuríður Harpa Sigurðardóttir skrifar:

Þuríður Harpa Sigurðardóttir:
Íslenskur almenningur var mergsoginn af bankaauðmönnum og hrægömmum þeirra, nú virðist upplýst um rányrkju í okkar flottasta atvinnuvegi.

Alveg ótrúleg framganga fjármálaráðherra og sjávarútvegsráðherra, á mjög viðkvæmum tíma þar sem auðséð er að það verður að efla og tryggja eftirlitsstofnanir s.s. Fiskistofu og Hafrannsóknastofnunin sem verða að hafa nægjanlegan mannafla til að sinna sínum skyldum og verkefnum. Til að stemma stigu við þeirri, að því er virðist glæpastarfsemi, sem birtist landanum á hverjum degi. Ég spyr er leikurinn að gera eftirlitsstofnanir svo vanbúnar og vanfjármagnaðar að íslenska ríkið eigi aldrei séns í að verjast stórkostlegri rányrkju sem hér virðist vera við lýði og festa sig alltaf fastar í sessi?

Íslenskur almenningur var mergsoginn af bankaauðmönnum og hrægömmum þeirra, nú virðist upplýst um rányrkju í okkar flottasta atvinnuvegi. Hér sitja á gullkistunum ráðherrar sem hrópa svo á götum að peningaóráðsía sé hjá Landspítalanum sem hefur verð vanfjármagnaður í fjölda ára og að öryrkjar hafi aldrei haft það betra.

Þú gætir haft áhuga á þessum

Skuldinni vegna alvarlegs rafmagnsleysis, sem hálft landið varð fyrir, er skellt á landeigendur og umhverfissinna. Ég hef ekki enn séð hvaða fjármagni á að verja í rannsókn vegna Samherjamálsins eða hvernig ríkið ætlar að sjá til þess að sú rannsókn verði ekki svo vanfjármögnuð að engin leið sé að rannsaka það sem skyldi. Jesús hvað við eigum bágt þessi þjóð!


Tengdar fréttir sem þú gætir haft áhuga á að lesa: