- Advertisement -

Heiðrún Lind og Gísli Marteinn

Við sjáumst svo kannski í næsta þætti.

Heiðrún Lind Marteinsdóttir, framkvæmdastjóri SFS, er ekki glöð með Gísla Martein Baldursson. Hún bankar upp á vill koma í næsta þátt hjá Gísla Marteini. Heiðrún Lind skrifar:

„Ég vinn fyrir stóra atvinnugrein og málefni hennar eru stundum umdeild. Ég þarf því að sæta því að það sem ég geri og segi verði gagnrýnt – af hálfu félagsmanna SFS, stjórnmálamanna, fréttamanna og almennings. Yfir því kveinka ég mér ekki, en ég geri þá sanngjörnu kröfu að gagnrýnin byggi á staðreyndum eða rökum. Í liðinni viku hefur mér þótt stöku fjölmiðlamenn virða þetta að vettugi. Það hefur einfaldlega verið farið rangt með. Þegar mér var síðan í dag bent á að horfa á innslag Gísla Marteins, í þætti sínum í gær um fréttir liðinnar viku, tók steininn úr.

Um síðustu helgi aðstoðaði ég þá sem gera út fiskiskipið Júlíus Geirmundsson við að færa í orð afsökunarbeiðni vegna þeirra mistaka sem gerð voru þegar skipverjar tóku að veikjast. Yfirlýsinguna má meðal annars sjá hér: https://www.frosti.is/…/Yfirlysing_Hradfyrstihussins…/

Þú gætir haft áhuga á þessum

Skilaboðin voru aðeins ein; þeir báðust einlæglega afsökunar.

Þegar mál koma upp á meðal félagsmanna SFS, þar sem alvarlega út af bregður í starfseminni, þá liggur það í hlutarins eðli að ég eigi samskipti við hlutaðeigandi og fái upplýsingar um hvers eðlis mál eru. Í þessu máli liggur fyrir að ákvarðanir sem teknar voru þegar bera fór á veikindum skipverja voru ekki í samræmi við skýrar leiðbeiningar sem gefnar höfðu verið út af SFS og stéttarfélögum sjómanna. Afleiðingar þess voru afdrifaríkar. Forsvarsmenn fyrirtækisins höfðu í nægu að snúast eftir að ljóst var hvers eðlis var. Úr varð því að ég færði í orð þau skilaboð sem þeir vildu koma á framfæri. Skilaboðin voru aðeins ein; þeir báðust einlæglega afsökunar. Ég var sammála þeim skilaboðum. Í yfirlýsingunni sem send var fjölmiðlum, var hvergi vísað til fordæmalausra tíma eða að menn hefðu ekki þekkt þann faraldur sem geisað hafði síðan í mars. Þau ummæli eru höfð eftir framkvæmastjóra fyrirtækisins í viðtali við Vísi og ég hafði eðli máls samkvæmt ekki aðkomu að þeim. Ég reyni að liðsinna þegar þess er þörf, en ég er ekki svo alltumlykjandi að ég fari í viðtöl í nafni einstakra félagsmanna minna.

SFS gera þá kröfu að félagsmenn fylgi lögum og fyrirmælum. Þetta hef ég ítrekað sagt þegar upp hafa komið mál þar sem út af hefur brugðið í starfsemi einstakra félagsmanna SFS. Að því leyti þurfti ekki umhugsunar við vegna þessa máls. Hins vegar taldi ég þetta mál ekki þess eðlis að við ítrekuðum einfaldlega þessa eðlilegu afstöðu. Ég vildi ekki tala um þessa skipverja eins og þeir væru eitthvert atvik á blaði, frávik frá leiðbeiningum, lærdómur. Heilsu þeirra var teflt í tvísýnu og ég vona að yfirlýsing mín, fyrir hönd SFS, hafi komið því skýrlega á framfæri að slíkt má aldrei gerast. Yfirlýsingu SFS má meðal annars lesa hér: https://sfs.is/greinar/tilkynning-2/

Það getur vel verið að þessi atburðarás hafi verið Gísla Marteini og öðrum óskeikulum mönnum sem segja fréttir mikið skemmtiefni. Nú gangi ég í öll störf og segist ekki þekkja þetta Covid. Ég velti því hins vegar fyrir mér hvort þessir aðilar mættu ekki við og við huga að lögum og leiðbeiningum sem þeirra störfum eru sett. Þess hlýtur jú að finna stað í skrifuðum reglum, að ekki sé farið rangt með staðreyndir. Í ljósi þeirrar gagnrýni sem Gísli Marteinn hafði á fyrrgreinda atburði, þá hlýtur hann að stíga fljótt fram með yfirlýsingu og biðjast afsökunar á því að hafa farið ranglega með staðreyndir og þar með ekki virt skýrlega skrifaðar reglur. Að vanda er ég boðin og búin að færa þá afsökunarbeiðni í orð, ef þessi gamli vinur minn óskar slíkrar aðstoðar. Við sjáumst svo kannski í næsta þætti.“


Auglýsing

Tengdar fréttir sem þú gætir haft áhuga á að lesa: