- Advertisement -

Lækkið launin ykkar

Skorað hefur verið á stjórnvöld breyti launakjörum þingmanna og ráðherra þannig að þau samræmist forsendu kjarasamninganna en verði ekki stefnumarkandi fyrir samningagerð á vinnumarkaði.

Áskorunin var samþykkt á fjölmennum fundi samninganefndar Flóafélaganna og Stéttvest. Nefndin skorar á ríkisstjórnina að draga hækkanir kjararáðs til baka.

Þar var samþykkt einróma að skora á ríkisstjórnina að draga til baka ákvörðun kjararáðs um launahækkanir þingmanna og ráðherra. Formaður samninganefndar fékk umboð til að vinna áfram að sameiginlegri niðurstöðu í kjaramálum innan samninganefndar ASÍ. Tillagan er þessi:

„Samninganefnd Flóafélaganna Eflingar, Hlífar, VSFK og Stéttarfélags Vesturlands samþykkir að heimila formanni samninganefndar að vinna áfram á grundvelli þeirra forsendna kjarasamninga frá 2015 sem staðist hafa og varða húsnæðismál og þróun kaupmáttar.

Þú gætir haft áhuga á þessum

Jafnframt beinir samninganefndin þeirri áskorun til stjórnvalda að ríkisstjórnin beiti sér fyrir því að launakjörum alþingismanna og ráðherra verði breytt þannig að þau samræmist forsendu kjarasamninganna en verði ekki stefnumarkandi fyrir samningagerð á vinnumarkaði.“


Tengdar fréttir sem þú gætir haft áhuga á að lesa: